Hoppa yfir valmynd
16. október 2008 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 16. október 2008

FUNDARGERÐ

Ár 2008, fimmtudaginn 16. október, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Fundurinn fór fram að Neshaga 16, Reykjavík. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

 

1.         Mál nr. 49/2008          Eiginnafn / ritháttur:  Ronald  (kk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Mál þetta, sem móttekið var 25. september 2008, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar þann sama dag en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa

átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Eiginnafnið Rónald er ekki á mannanafnaskrá þótt ýmis svipuð nöfn séu á skránni, til dæmis Rólant og Dónald. Rithátturinn Ronald með –o- samræmist ekki almennum íslenskum ritreglum miðað við að eðlilegur íslenskur framburður nafnsins sé með –ó- eins og í sambærilegum nöfnum. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár eru þrír karlar skráðir með eiginnafnið Ronald sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna og er sá elsti þeirra fæddur árið 1945 ([...] barnsins í máli þessu). Auk þeirra eru 50 karlar skráðir í Þjóðskrá með nafnið (fyrra eða síðara nafn) sem ekki uppfylla 2. grein vinnulagsreglnanna um íslenskan ríkisborgararétt og búsetu á Íslandi. Eiginnafnið Roland eða önnur nöfn sem líkjast nafninu Roland koma ekki fyrir í „Skrá um eiginheiti karla fæddra á Íslandi samkvæmt manntalinu 1. desember 1910“ og heldur ekki í eldri manntölum. Því telst ekki vera hefð fyrir þessum rithætti. Eiginnafnið Ronald (kk.) uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Rétt er að taka fram að unnt er að fallast á ritháttinn Rónald, sé þess óskað.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Ronald (kk.) er hafnað.

  

 

 

 

4.         Mál nr. 65/2008          Eiginnafn:        Júní  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Júní (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Júnís, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Júní (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Júnís.

 

 

 

 

5.         Mál nr. 66/2008          Eiginnafn:        Pía  (kvk.)        Endurupptaka

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Mannanafnanefnd tók til úrskurðar beiðni um eiginnafnið Pia (kvk.) á fundi sínum miðvikudaginn 24. október 2007 þar sem beiðninni var hafnað, sbr. mál nr. 53/2007. Í þeim úrskurði segir m.a. að Pía væri hin eðlilega íslenska mynd nafnsins en vegna mistaka láðist að geta þess í úrskurðarorðum. Mannanafnanefnd hefur því, í embættisnafni, ákveðið að taka málið upp til meðferðar og afgreiðslu.

 

Eiginnafnið Pía (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Pía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

6.         Mál nr. 67/2008          Eiginnafn / ritháttur:  Maríkó  (kvk.)  Endurupptaka

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Mannanafnanefnd tók til úrskurðar beiðni um eiginnafnið Marikó (kvk.) á fundi sínum laugardaginn 28. apríl 2007 þar sem beiðnin var samþykkt, sbr. mál nr. 20/2007. Í þeim úrskurði segir m.a.: „ ..... Ritháttur eiginnafnsins Marikó (kvk.) hefur verið nokkuð á reiki og hefur ritmyndin Maríkó m.a. verið samþykkt á mannanafnaskrá. Þar sem enginn er skráður með eiginnafnið (ritháttinn) Maríkó í Þjóðskrá, skal færa það nafn út af mannanafnaskrá. Að mati mannanafnanefndar ætti ritmyndin Marikó með ‘i’ að vera hin hlutlausa gerð nafnsins og þannig grunnmynd þess en aðrar gerðir ritmyndir af því....“

 

Með vísan til ofangreinds og þar sem komin er fram beiðni um eiginnafnið (ritháttinn) Maríkó (kvk.) hefur mannanafnanefnd, í embættisnafni, ákveðið að taka málið upp til meðferðar og afgreiðslu.

 

Eiginnafnið Maríkó (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Maríkóar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið (ritháttinn) Maríkó (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Maríkóar, og sem ritmynd eiginnafnsins Marikó.

 

 

 

7.         Mál nr. 68/2008          Eiginnafn / ritháttur:  Thór  (kk.)       Endurupptaka

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Mannanafnanefnd tók til úrskurðar beiðni um eiginnafnið Thór (kk.) á fundi sínum laugardaginn 28. apríl 2007 þar sem beiðnin var samþykkt, sbr. mál nr. 15/2007. Vegna mistaka láðist að geta þess í úrskurðarorðum að nafnið Thór væri samþykkt sem ritmynd eiginnafnsins Tór (kk.) sem er á mannanafnaskrá. Mannanafnanefnd hefur því, í embættisnafni, ákveðið að taka málið upp aftur til meðferðar og afgreiðslu.

 

Eiginnafnið Thór (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Thór – um Thór – frá Thór – til Thórs.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið (ritháttinn) Thór (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd eiginnafnsins Tór.

 

  

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum