Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 28. janúar 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, miðvikudaginn 28. janúar var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði S. Óskarsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:

 

 1.         Mál nr. 10/2009         Eiginnafn:       Tjaldur  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Tjaldur (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Tjaldur (nf.) – Tjald (þf.) – Tjaldi (þgf.) – Tjalds (ef.).

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tjaldur  (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsendingu þess, Tjalds, en þó ekki fyrr en skráning þess hefur verið framkvæmd hjá Þjóðskrá.

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum