Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2007 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 28. janúar 2007

FUNDARGERÐ

Ár 2007, sunnudaginn 28. janúar, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Tekið var fyrir:

 

 

1.         Mál nr. 1/2007.                       Eiginnafn:        Marit  (kvk.)  

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

a.     Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

b.     Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

c.     Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

d.     Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

e.     Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Hugtakið hefð varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni.

 

Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem byggðar eru á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum.

 

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.     Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.     Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.     Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.     Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.     Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verði hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru sjö íslenskar konur skráðar með eiginnafnið Marit (fyrra og síðara nafn) og er sú elsta fædd árið 1916. Eiginnafnið Marit telst því hafa áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og c-lið vinnulagsreglna mannanafnanefndar frá 14. nóvember 2006. Eiginnafnið Marit tekur beygingu í eignarfalli, Maritar, og uppfyllir þar af leiðandi öll ákvæði 5. gr. áðurnefndra laga. Marit telst vera annar ritháttur eiginnafnsins Marít og skal fært sem slíkt á mannanafnaskrá.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Marit (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Maritar, og sem ritmynd eiginnafnsins Marít.

 

  

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum