Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2008 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 23. janúar 2008

FUNDARGERÐ

Ár 2008, miðvikudaginn 23. janúar, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Fundurinn fór fram að Neshaga 16, Reykjavík. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

4.         Mál nr.  02/2008         Eiginnafn:        Asael  (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður: 

Eiginnafnið Asael (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Asaels, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið er biblíunafn og löng hefð er fyrir samþykki biblíunafna á mannanafnaskrá.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Asael (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

   

5.         Mál nr.  03/2008         Eiginnafn:        Idda  (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Idda (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Iddu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Idda (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

   

7.         Mál nr.  05/2008         Eiginnafn:        Sónata  (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður: 

Eiginnafnið Sónata (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Sónötu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sónata (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Sónötu.

 

 

 8.         Mál nr.  06/2008         Eiginnafn:        Zíta  (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður: 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

 

1.     Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

2.     Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

3.     Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

 

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa

átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Eiginnafnið Zíta (kvk.) getur ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls en bókstafurinn ‘z’ var felldur brott úr íslenskri stafsetningu árið 1974, sbr. auglýsingu frá menntamálaráðuneytinu nr. 132/1974. Þó má nota bókstafinn ‘z’ í nútímamáli í eiginnöfnum (af erlendum uppruna) þar sem rithátturinn hefur unnið sér hefð, dæmi: Zóphanías, og ættarnöfnum, dæmi: Eggerz.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru tvær konur skráðar með eiginnafnið Zíta. Sú eldri (fædd árið 1935) að fyrra nafni en sú yngri (fædd árið 1954) að síðara nafni. Því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Eiginnafnið Zíta uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Zíta (kvk.) er hafnað.

 

   

9.         Mál nr.  07/2008         Millinafn:         Vatnsfjörð

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður: 

Millinafnið Vatnsfjörð er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Vatnsfjörð uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Vatnsfjörð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum