Hoppa yfir valmynd
9. október 2006 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 6. október 2006

Fundargerð

Ár 2006, föstudaginn 6. október, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Mætt voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Baldur Sigurðsson og Ágústa Þorbergsdóttir. Tekið var fyrir:

 

1.         Mál nr. 71/2006.      Eiginnafn:      Vibeke  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

 

Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um manna-nöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2004 og sem byggðar eru á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum:

 

1.  Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum (með Íslendingum er átt við þá íslensku ríkisborgara sem eiga eða hafa átt lögheimili hér á landi);
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Eiginnafnið Vibeke (kvk.) tekur ekki íslenska eignarfallsendingu, það brýtur í bág við íslenskt mál og getur ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera aðeins tvær íslenskar konur eiginnafnið Vibeke að fyrra eða síðara nafni og er hin eldri fædd árið 1956. (Bent skal á að með íslenskum konum er hér átt við þær konur sem eru íslenskir ríkisborgarar og sem eiga eða hafa átt lögheimili hér á landi). Því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofan-greindar vinnulagsreglur. Eiginnafnið Vibeke uppfyllir þar af leiðandi ekki ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Vibeke (kvk.) er hafnað.

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum