Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2002 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 10. janúar 2002

Þann 15. janúar 2002, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

 

Mál nr. 1/2002

Eiginnafn: Ares (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Ares tekur eignarfallsendingu (Aresar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ares er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 2/2002

Eiginnafn: Christine (kvk.)

Fram hefur komið beiðni um endurupptöku úrskurðar nefndarinnar frá 8. nóvember 2001. Af hálfu úrskurðarbeiðanda er vísað til þess að nafnið Christine hafi unnið sér hefð í íslensku.

Mál þetta er endurupptekið. Með vísan til fjölda nafnbera á manntali 1. des. 2001, sbr. vinnulagsreglur nefndarinnar frá 7. september 2000, telst eiginnafnið Christine hafa unnið sér hefð í íslensku máli og fullnægir því 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Christine er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 3/2002

Millinafn: Byron

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Millinafnið Byron telst ekki uppfylla ákvæði 2. mgr. sbr. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannnöfn. Beiðni um millinafnið Byron er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Byron er hafnað.

 

Mál nr. 4/2002

Eiginnafn: Rebecca (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Rebecca telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Rebecca er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Rebecca er hafnað.

 

Mál nr. 5/2002

Eiginnafn: Ralph (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Ralph telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Ralph er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ralph er hafnað.  

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum