Hoppa yfir valmynd
19. ágúst 2004 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 19. ágúst 2004

Þann 19. ágúst 2004, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsnæði Orðabókar Háskólans, Nesvegi 16, Reykjavík.

Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 59/2004

Eiginnafn: Víggunnur (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Víggunnur tekur eignarfallsendingu (Víggunnar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Víggunnur er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 60/2004

Eiginnafn: Anais (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Anais telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Anais er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Anais er hafnað.

Mál nr. 61/2004

Eiginnafn: Patrick (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með tilliti til fjölda nafnbera telst eiginnafnið Patrick hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 7. september 2000, og uppfyllir því skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Patrick er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 62/2004

Eiginnafn: Niklas (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Niklas telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Niklas er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Niklas er hafnað.

Mál nr. 63/2004

Eiginnafn: Arnarr (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins dags. 29. júlí 2004 var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni Einars Sverris Björnssonar og Guðbjargar Þórdísar Kristjánsdóttur um breytingu annars eiginnafns ólögráða sonar þeirra, þannig að Arnar verði Arnarr.

Nafnið Arnarr telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Arnarr er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Arnarr er hafnað.

Mál nr. 64/2004

Aðlögun eiginnafns: Bryndisa verði Bryndísa

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með bréfi Hagstofu Íslands, þjóðskrár, dags. 13. júlí 2004 var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni Karenar Lynn Thorsteinsdóttur og Þorsteins Elí Halldórssonar um aðlögun eiginnafns dóttur þeirra að íslensku máli, þannig að Bryndisa verði Bryndísa.

Með hliðsjón af heimild í 4. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, um aðlögun kenninafna sem dregin eru af erlendum eiginnöfnum, er fallist á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Ofangreind beiðni um aðlögun eiginnafns, Bryndisa verði Bryndísa er tekin til greina.

Mál nr. 65/2004

Eiginnafn: Sigur (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Sigur tekur eignarfallsendingu (Sigurs) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sigur er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 66/2004

Eiginnafn: Tímótheus (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Tímótheus telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Tímótheus er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tímótheus er hafnað.

Mál nr. 67/2004

Eiginnafn: Rúrí (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Rúrí tekur eignarfallsendingu (Rúríar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Rúrí er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 68/2004

Eiginnafn: Alexa (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Alexa tekur eignarfallsendingu (Alexu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Alexa er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 69/2004

Eiginnafn: Tanya (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með tilliti til fjölda nafnbera telst eiginnafnið Tanya hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 1. júlí 2004, og uppfyllir því skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tanya er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Beiðni um endurupptöku máls nr. 79/2003.

Þann xxx sl. kom fram beiðni frá xxxxxxxxxxxxxx, um að nefndin endurskoðaði úrskurð sinn frá xxxxxxxxxxx í máli nr. 79/2003, en í þeim úrskurði hafði mannanafnanefnd synjað beiðni um að karlmannsnafnið Cýrus væri tekið á mannanafnaskrá. Í erindinu er vísað til þess að nafnið Cýrus hafi verið í fjölskyldu xxxxxx frá árinu 1845 og saga nafnsins í fjölskyldunni er rakin.

Með vísan til þessa er málið endurupptekið.

Í vinnulagsreglum mannanafnanefndar frá 7. september 2000 kemur fram að nafn telst hefðað í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996:

· Það er nú borið af a.m.k. 20 Íslendingum.

· Það er nú borið af 15-19 Íslendingum og sá elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri.

· Það er nú borið af 10-14 Íslendingum og sá elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri.

· Það er nú borið af 5-9 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 (eða fyrr).

· Það er nú borið af 1-4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1845 (eða fyrr).

Í þjóðskrá er að finna einn mann sem ber nafnið Cýrus og er sá fæddur 1925. Með hliðsjón af viðmiðunarreglum mannanafnanefndar um það hvenær nafn telst hefðað, óskaði nefndin eftir frekari upplýsingum úr manntali frá Hagstofu Íslands. Þær upplýsingar leiddu í ljós að nafnið Cýrus kom fyrst fram í manntali árið 1910 og var sá fæddur 1845.

Með vísan til þess sem að framan er rakið þykir ljóst að eiginnafnið Cýrus telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 7. september 2000, og uppfyllir því skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Cýrus er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Fleira ekki gert, fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum