Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2004 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 8. júlí 2004

Þann 8. júlí 2004, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsnæði Orðabókar Háskólans, Nesvegi 16, Reykjavík.

Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 55/2004

Eiginnafn: Leonida (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Leonida telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um nafnið Leonida er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um Leonida er hafnað.

Mál nr. 56/2004

Eiginnafn: Kata (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Kata tekur eignarfallsendingu (Kötu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um nafnið Kata er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 57/2004

Eiginnafn: Von (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Von tekur eignarfallsendingu (Vonar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um nafnið Von er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 58/2004

Eiginnafn: Adel (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Adel tekur eignarfallsendingu (Adels) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um Adel er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Fleira ekki gert, fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum