Hoppa yfir valmynd
28. maí 2004 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 28. maí 2004

Þann 28. maí 2004, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsnæði Orðabókar Háskólans, Nesvegi 16, Reykjavík.

Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 29/2004

Eiginnafn: Askja (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Askja tekur eignarfallsendingu (Öskju) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Askja er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 30/2004

Eiginnafn: Marlis (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Marlis telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Marlis er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Marlis er hafnað.

Mál nr. 31/2004

Eiginnafn: Marlís (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Marlís tekur eignarfallsendingu (Marlísar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Marlís er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 32/2004

Eiginnafn: Bambi (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Bambi tekur eignarfallsendingu (Bamba) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bambi er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 33/2004

Millinafn: Nesmann

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Millinafnið Nesmann telst uppfylla ákvæði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannnöfn. Beiðni um millinafnið Nesmann er því samþykkt.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Nesmann er samþykkt og verður það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 34/2004

Eiginnafn: Kim (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Kim telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Kim er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kim er hafnað.

Mál nr. 35/2004

Eiginnafn: Ástmary (kvk)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Ástmary telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Ástmary er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ástmary er hafnað.

Mál nr. 36/2004

Eiginnafn: Gyðja (kvk)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Gyðja tekur eignarfallsendingu (Gyðju) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Gyðja er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 37/2004

Kenninafn: Hlöðversson verði Hlöðvesson

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Samkvæmt 3. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996 skal föðurnafn (kenninafn) myndað úr föðurnafni í eignarfalli að við bættu son. Eignarfall eiginnafnsins Hlöðver er Hlöðvers (með stofnlægu erri, þar sem -r varðveitist í öllum föllum nafnsins. Beiðni um breytingu á kenninafni er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um kenninafnið Hlöðvesson er hafnað.

Mál nr. 38/2004

Eiginnafn: Tania (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Tania telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Tania er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tania er hafnað.

Mál nr. 39/2004

Eiginnafn: Sonný (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Sonný tekur eignarfallsendingu (Sonnýjar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sonný er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 40/2004

Millinafn: Har

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Millinafnið Har telst uppfylla ákvæði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannnöfn. Beiðni um millinafnið Har er því samþykkt.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Har er samþykkt og verður það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 41/2004

Eiginnafn: Dögun (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Dögun tekur eignarfallsendingu (Dögunar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dögun er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 42/2004

Millinafn: Svan

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Karlmannsnafnið Svan er þegar á mannanafnaskrá sem eiginnafn og því er ekki heimilt að taka nafnið á millinafnaskrá, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um millinafnið Svan er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Svan er hafnað.

Mál nr. 43/2004

Eiginnafn: Regin (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Regin telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Regin er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Regin er hafnað.

Mál nr. 44/2004

Eiginnafn: Atlas (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Atlas tekur eignarfallsendingu (Atlasar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Atlas er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 45/2004

Eiginnafn: Mattías (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Mattías tekur eignarfallsendingu (Mattíasar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Mattías skal fært á mannanafnaskrá sem ritmynd af eiginnafninu Matthías.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Mattías er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá sem ritmynd eiginnafnsins Matthías.

Mál nr. 46/2004

Eiginnafn: Konstantínos (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Konstantínos telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Konstantínos er því hafnað. Þá telst Konstantínos ekki vera ritmynd nafnsins Konstantínus.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Konstanínos er hafnað.

Fleira ekki gert, fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum