Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2003 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 4. nóvember 2003

Þann 4. nóvember 2003, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í Árnagarði, Háskóla Íslands v/Suðurgötu, Reykjavík. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 69/2003

Eiginnafn: Vagna (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Vagna tekur eignarfallsendingu (Vögnu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Vagna er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 70/2003

Eiginnafn: Villi (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Villi tekur eignarfallsendingu (Villa) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Villi er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 71/2003

Eiginnafn: Stephan (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Stephan telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Stephan er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Stephan er hafnað.

Mál nr. 72/2003

Eiginnafn: Elí (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Elí telst vera karlmannsnafn og er það á mannanafnaskrá sem slíkt. Með vísan til 2. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn er beiðni um eiginnafnið Elí sem kvenmannsnafn hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Elí (kvk.) er hafnað.

Mál nr. 73/2003

Millinafn: Elí

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Elí telst vera karlmannsnafn og er það á mannanafnaskrá sem slíkt. Teljast því ekki lagaskilyrði fyrir því að taka nafnið upp sem millinafn, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Elí er hafnað.

Mál nr. 74/2003

Eiginnafn: Nóel (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Nóel tekur eignarfallsendingu (Nóels) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Nóel er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum