Hoppa yfir valmynd
13. mars 2003 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 13. mars 2003

 

Þann 13. mars 2003, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.


Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:



Mál nr. 16/2003


Eiginnafn: Ríó (kk.)



Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:


Eiginnafnið Ríó tekur eignarfallsendingu (Ríós) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.


Úrskurðarorð:


Beiðni um eiginnafnið Ríó er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.



Mál nr. 17/2003


Eiginnafn: Kadder (kk.)



Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:


Nafnið Kadder telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Kadder er því hafnað.


Úrskurðarorð:


Beiðni um eiginnafnið Kadder er hafnað.



Mál nr. 18/2003


Eiginnafn: Ólasteina (kvk.)


Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:



Ólasteina telst ekki myndað í samræmi við almennar nafnamyndunarreglur íslensks máls og telst því brjóta í bága við íslenskt málkerfi. Þá hefur Ólasteina ekki unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.


Úrskurðarorð:


Beiðni um eiginnafnið Ólasteina er hafnað.



Fleira ekki gert.


Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum