Hoppa yfir valmynd
1. júní 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 82/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 82/2016

Miðvikudaginn 1. júní 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Jón Baldursson læknir og Þórhildur Líndal lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. febrúar 2016, kærir A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs frá 4. desember 2015.

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 12. nóvember 2015, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í þrjá mánuði vegna barns hans sem fæddist þann X. júní 2014. Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 24. nóvember 2015, var kærandi upplýstur um að ráða mætti af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra að hann uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 13. gr., sbr. 1. mgr. 1. gr. og 2. mgr. 7. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof, þess efnis að hafa verið í minnst 25% starfshlutfalli síðustu sex mánuði fyrir fæðingardag barns þar sem engar tekjur væru skráðar á hann á tímabilinu janúar til mars 2014. Kæranda var í framhaldinu leiðbeint um hvað teldist jafnframt til þátttöku á vinnumarkaði samkvæmt 2. mgr. 13. gr. a. laganna og gefinn kostur á að leggja fram gögn því til staðfestingar. Að öðrum kosti mætti hann eiga von á því að umsókn hans um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði yrði synjað.

Kærandi lagði fram frekari gögn en með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 4. desember 2015, var kærandi á ný upplýstur um að ráða mætti af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra að hann uppfyllti ekki framangreint skilyrði þar sem hann hafi ekki gert skil á tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi tímabilið janúar til mars 2014. Kæranda var í framhaldinu gefinn kostur á að leggja fram frekari gögn, að öðrum kosti mætti hann eiga von á því að umsókn hans um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði yrði synjað.

Kærandi kærði framangreinda ákvörðun Fæðingarorlofssjóð til úrskurðarnefndar velferðarmála með kæru, dags. 18. febrúar 2016. Með bréfi, dags. 23. febrúar 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 13. mars 2016, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 17. mars 2016, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs frá 4. desember 2015.

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála er það hlutverk nefndarinnar að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof. Í 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir að ákvörðun, sem ekki bindur enda á mál, verði ekki kærð til æðra stjórnvalds fyrr en málið hefur verið til lykta leitt. Ákvarðanir sem teknar eru um meðferð stjórnsýslumáls og fela ekki í sér stjórnvaldsákvörðun í málinu þar sem málið er til lykta leitt, þ.e. svokallaðar formákvarðanir, verða því ekki kærðar til úrskurðarnefndarinnar.

Samkvæmt bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 4. desember 2015, var kæranda gefinn kostur á að leggja fram frekari gögn vegna umsóknar hans um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, að öðrum kosti mætti hann eiga von á því að umsókn hans um greiðslur úr sjóðnum yrði synjað. Samkvæmt gögnum málsins hafði Fæðingarorlofssjóður því ekki tekið endanlega ákvörðun í máli kæranda þegar kæra barst úrskurðarnefndinni. Að því virtu og í samræmi við 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að málið sé ekki tækt til efnismeðferðar. Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Guðrún A. Þorsteinsdóttir, formaður

Jón Baldursson

Þórhildur Líndal

 

 

                                                                    

                                                                    

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum