Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið, Úrskurðir mennta- og menningarmálaráðuneytisins

Synjun á greiðslu námsstyrks

Ár 2007, þriðjudaginn 17. apríl, var kveðinn upp í menntamálaráðuneytinu svofelldur:

ÚRSKURÐUR

I. Kröfur aðila

Með bréfi, dags. 15. maí sl., kærði A, hrl., f.h. B, (hér eftir nefnd kærandi), úrskurð námsstyrkjanefndar (hér eftir nefnd kærði) dags. 10. maí 2006, um að synja umsókn kæranda um akstursstyrk skólaárið 2005 - 2006, á þeirri forsendu að hún stundaði ekki nám fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu, sbr. a. lið 6. gr. reglugerðar um námsstyrki 692/2003.

Með hliðsjón af gögnum málsins er krafa kæranda skilin þannig að þess sé krafist að ákvörðun kærða verði felld úr gildi og henni verði úrskurðaður akstursstyrkur fyrir skólaárið 2005 - 2006.

Af hálfu kærða er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði staðfest, enda sé hún í samræmi við lög og reglur.

II. Málsatvik

Kærandi, sem er nemandi við skóla X, flutti lögheimili sitt 14. júní 2005 frá lögheimili foreldra sinna til unnusta síns að Y. Kærandi sótti um akstursstyrk vegna náms við skólann skólaárið 2005 - 2006, en var synjað á þeirri forsendu að hún stundaði ekki nám fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu, sbr. a. lið 6. gr. reglugerðar um námsstyrki nr. 692/2003. Með fyrrgreindu bréfi, dags. 15. maí sl., skaut A, hrl. ákvörðun kærða f.h. kæranda til menntamálaráðuneytisins.

III. Málsmeðferð

Stjórnsýslukæra A hrl. f.h. kæranda var móttekin 18. maí 2006. Með bréfi ráðuneytisins, dags. 22. maí sl., var stjórnsýslukæran send kærða til umsagnar. Umsögn kærða barst ráðuneytinu 30. maí sl. Með bréfi ráðuneytisins, dags. 20. júní sl., var lögmanni kæranda kynnt áðurnefnd umsögn kærða og honum gefinn kostur á að koma að frekari athugasemdum, sem hann gerði með bréfi dags. 21. júní sl.

IV. Málsástæður og lagarök kæranda

Í kærunni er því haldið fram að kærandi uppfylli ákvæði reglugerðar um akstursstyrk, þar sem hún sæki skóla frá skráðu lögheimili og tilvonandi tengdafjölskyldu. Greint er frá því í kærunni að kærandi búi með unnusta sínum á heimili foreldra hans að Y, og vakni því spurning um hver sé raunveruleg fjölskylda hennar og hvort fólk það sem hún búi hjá falli ekki undir þá skilgreiningu sem fram kemur í c. lið 2. gr. reglugerðar um námsstyrki nr. 692/2003. Í kærunni er bent á að kærandi sé 19 ára gömul og því orðin lögráða, en samkvæmt úrskurði kærða þá virðist kærandi þurfa að flytja lögheimili til foreldra sinna til þess að vera styrkhæf. Því er haldið fram í kærunni að með þessu sé verið að svipta kæranda rétti til þess að ráða dvalarstað sínum sem hljóti að vera í andstöðu við lögræðislög. Kærandi heldur því fram að skilyrði a. liðar 6. gr. reglugerðar um námsstyrki, nr. 692/2003, um að umsækjandi um námsstyrk þurfi að sækja nám fjarri lögheimili og fjölskyldu til að hljóta styrk, taki til nemenda á framhaldsskólastigi sem ekki séu orðnir lögráða. Kærandi bendir á að þar sem hún sé orðin lögráða þá þurfi foreldrar hennar ekki lengur að sjá henni fyrir dvalarstað. Kærandi spyr hvernig yrði litið á umsókn kæranda ef foreldrar hennar hefðu ekki húsrými fyrir hana eða segðu henni að hún sem lögráða einstaklingur yrði að sjá sjálfri sér fyrir húsnæði.

V. Málsástæður og lagarök kærða

Kærði tekur fram að umsókn kæranda um akstursstyrk fyrir skólaárið 2005 - 2006 hafi verið hafnað á þeim forsendum að kærandi stundi ekki nám sitt fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu, sbr. a. lið 6. gr. reglugerðar um námsstyrki, nr. 692/2003. Kærði bendir á að samkvæmt reglugerð um námsstyrki, nr. 692/2003, þurfi skráð sambúð að hafa varað lengur en eitt ár til að maki teljist til fjölskyldu nemanda. Kærði bendir á að kærandi hafi flutt lögheimili sitt 14. júní 2005 frá lögheimili foreldra sinna, til unnusta síns að Y. Kærandi og unnusti hennar séu hins vegar ekki skráð í sambúð samkvæmt þjóðskrá. Því teljist unnustinn og fjölskylda hans ekki vera fjölskylda kæranda, sbr. skilgreiningu á fjölskyldu í c. lið 2. gr. reglugerðar um námsstyrki, nr. 692/2003. Kærði bendir jafnframt á að lengst af skólaárinu hafi foreldrar kæranda átt lögheimili á námsstað hennar. Þar með uppfylli hún heldur ekki hið almenna skilyrði um nám fjarri fjölskyldu, sbr. 2. tölul. 3. gr. laga nr. 79/2003 um námsstyrki. Kærði telur ákvörðun sína í máli þessu vera í samræmi við lög og reglur og fer fram á að ráðuneytið staðfesti hana.

VI. Rökstuðningur niðurstöðu

Gildissvið stjórnsýslulaga og kæruheimild.

Í stjórnsýsluframkvæmd hér á landi hefur ákvörðun stjórnvalds um bætur eða styrki til einstaklinga verið talin stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af því leiðir að ákvæði stjórnsýslulaga eiga við um slíkar ákvarðanir. Kæra kæranda verður af þeim sökum talin byggjast á almennri kæruheimild samkvæmt 26. gr. stjórnsýslulaga.

Samkvæmt 5. gr. laga um námsstyrki skipar menntamálaráðherra fimm manna nefnd, svokallaða námsstyrkjanefnd, sem skal sjá um úthlutun námsstyrkja. Skv. 6. gr. laganna skal nefndin leggja fyrir menntamálaráðherra tillögur um árlegar fjárveitingar í samræmi við markmið laganna.

Námsstyrkjanefnd er kærði í máli þessu. Samkvæmt auglýsingu nr. 3/2004 um staðfestingu forseta Íslands á reglugerð um Stjórnarráð Íslands fer menntamálaráðuneytið meðal annars með mál er varða námslán og námsstyrki. Ákvörðun nefndarinnar er því réttilega kærð til menntamálaráðuneytisins. Svo sem fyrr greinir var með kæru þessari kærður úrskurður námsstyrkjanefndar, dags. 10. febrúar 2006. Kæran var dags. 15. maí 2006 en barst ráðuneytinu 18. maí sl., eða 8 dögum eftir lok kærufrests. Með hliðsjón af röksemdum lögmanns kæranda vegna þessa verður talið afsakanlegt að kæran hafi ekki borist fyrr með vísan til 1. tölul. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Um skilyrði laga um námsstyrki, nr. 79/2003.

Í lögum um námsstyrki er mælt fyrir um skilyrði styrkveitinga. Samkvæmt 2. gr. laganna njóta þeir nemendur sem stunda reglubundið framhaldsskólanám hér á landi og verða að dveljast fjarri fjölskyldu sinni vegna námsins réttar til námsstyrkja. Í 1. málslið 2. mgr. 6. gr. laganna er mælt fyrir um að námsstyrkjanefnd úthluti námsstyrkjum að umsóknarfresti loknum. Í 8. gr. laganna segir að menntamálaráðuneytið setji reglugerð er mæli nánar fyrir um hvernig lögin skuli framkvæmd.

Reglugerð um námsstyrki, nr. 692/2003.

Menntamálaráðherra hefur mælt nánar fyrir um framkvæmd laganna með setningu reglugerðar um námsstyrki, nr. 692/2003, með síðari breytingum. Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar eiga nemendur á framhaldsskólastigi sem fullnægja tilgreindum skilyrðum rétt til námsstyrkja til jöfnunar á fjárhagslegum aðstöðumun vegna búsetu svo sem nánar er kveðið á um í reglugerðinni. Í a. lið 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar er mælt fyrir um það skilyrði fyrir úthlutun akstursstyrks að nemandi verði að sækja skóla frá lögheimili sínu og fjölskyldu vegna námsins. Í b. lið 2. málsgr. 6. gr. er mælt fyrir um það skilyrði að lögheimili sé ekki í nágrenni skóla skv. fylgiskjali með reglugerðinni. Í c. lið 2. gr. reglugerðarinnar er hugtakið fjölskylda skilgreint þannig að með því sé átt við foreldra nemanda, sé þeim til að dreifa - nánar tiltekið kynforeldra, stjúpforeldra, fósturforeldra eða kjörforeldra, en ella ömmur og afa nemanda; maka samkvæmt hjúskap aðila, maka samkvæmt staðfestri samvist eða maka samkvæmt skráðri sambúð í þjóðskrá, hafi skráningin varað lengur en eitt ár; svo og börn nemanda, þ.m.t. kynbörn, stjúpbörn, fósturbörn eða kjörbörn.

Niðurstaða.

Í máli þessu er deilt um hvort uppfyllt hafi verið skilyrði til þess að unnusti kæranda og eftir atvikum tengdafjölskylda hennar geti talist til fjölskyldu hennar í skilningi 2. tölul. 3. gr. laga um námsstyrki nr. 79/2003, sbr. c. lið 2. gr. reglugerðar nr. 692/2003, og kærandi hafi þannig uppfyllt skilyrði til að hljóta akstursstyrk með því að þurfa að sækja nám fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu, sbr. a. lið 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar.

Skv. 1. gr. laga um námsstyrki veitir ríkissjóður námsstyrki til jöfnunar á fjárhagslegum aðstöðumun nemenda í framhaldsskólum að því leyti sem búseta veldur þeim misþungum fjárhagsbyrðum. Með aðstöðumun vegna búsetu er hér átt við að nemandi þurfi að bera aukinn kostnað af því að sækja skóla fjarri fjölskyldu sinni. Í 3. tölul. 2. gr. laganna segir að réttar til námsstyrkja njóti nemendur sem verða að dveljast fjarri fjölskyldu sinni vegna námsins. Í 2. tölul. 3. gr. sömu laga kemur enn fremur fram að skilyrði skólaakstursstyrks sé að nemandi verði að sækja skóla fjarri fjölskyldu sinni. Samkvæmt gögnum málsins flutti kærandi lögheimili sitt til unnusta síns 14. júní 2005, en sambúð kæranda og unnusta hennar hefur ekki verið skráð í þjóðskrá. Þá hefur jafnframt verið upplýst í málinu að foreldrar kæranda fluttu lögheimili sitt frá Z til Þ hinn 5. maí 2006, þ.e. rétt fyrir lok skólaárs 2005-2006.

Hugtakið fjölskylda er ekki skýrt í lögum um námsstyrki en í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 79/2003 er hugtakið skýrt með eftirfarandi hætti:

Hugtakið „fjölskylda“ hefur ekki verið skilgreint í lögum, enda er fyrst og fremst um félagslegt hugtak að ræða. Lög hafa af þeim sökum ekki fjallað um fjölskylduna sem heildstætt hugtak heldur frekar um einstaklinga innan fjölskyldunnar. Vegna sérstaks eðlis þess málaflokks sem hér um ræðir verður þó ekki hjá því komist að skilgreina fjölskylduna nánar í frumvarpinu. Með hugtakinu „fjölskylda“ er átt við foreldra nemanda, nánar tiltekið kynforeldra, kjörforeldra, fósturforeldra og stjúpforeldra, svo og ömmur og afa nemandans; maka samkvæmt hjúskap aðila eða maka samkvæmt staðfestri samvist; sambúðaraðila í óvígðri sambúð og svo börn nemanda, þ.m.t. kynbörn, kjörbörn, stjúpbörn eða fósturbörn.

Samkvæmt framansögðu var það ætlun löggjafans við setningu laga nr. 79/2003 að óvígð sambúð félli undir hugtakið fjölskylda.

Eins og staðfest var í nýlegum úrskurði ráðuneytisins í námsstyrkjamáli, uppkveðnum 9. febrúar 2007, er skráning í þjóðskrá skilyrði þess að sambúð uppfylli skilyrði c. liðar 2. gr. reglugerðar nr. 692/2003. Með hliðsjón af framangreindu er það mat ráðuneytisins að gera verði þá lágmarkskröfu til umsækjanda um námsstyrk, sem byggir kröfu sína á sambúð með vísan til c. liðar 2. gr. reglugerðar nr. 692/2003, að sambúðin hafi verið skráð í þjóðskrá. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi hafði skráð lögheimili sitt á sama stað og unnusti hennar en ekki tilkynnt sambúðina til þjóðskrár. Af framangreindum lögskýringargögnum verður jafnframt ráðið að það var aldrei ætlun löggjafans að tengdafjölskylda nemanda kæmi til álita sem fjölskylda í skilningi laga um námsstyrki. Því er óhjákvæmilegt að staðfesta hina kærðu ákvörðun eins og nánar greinir í úrskurðarorðum. Ekki þykja efni til að taka afstöðu til ákvæða lögræðislaga í þessu sambandi.

ÚRSKURÐARORÐ:

Hin kærða ákvörðun námsstyrkjanefndar, dags. 10. febrúar 2006, um synjun námsstyrks til B fyrir skólaárið 2005-2006 er staðfest.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum