Hoppa yfir valmynd
5. desember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 172/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 5. desember 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 172/2011.

 

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 6. desember 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi 5. desember 2011 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 4. nóvember 2011. Vinnumálastofnun samþykkti umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, en með vísan til námsloka við B var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, með vísan til 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 6. desember 2011. Kærandi krefst þess að honum verði greiddar atvinnuleysisbætur án biðtíma. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun hafi verið rétt.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 4. nóvember 2011. Samkvæmt skólavottorði frá B, dags. 2. september 2011, var kærandi skráður í nám í upphafi haustannar 2011 en var skráður úr námi að eigin ósk. Eftir að fyrrgreint skólavottorð barst Vinnumálastofnun óskaði stofnunin eftir skýringum kæranda með bréfi, dags. 18. nóvember 2011. Kærandi sendi Vinnumálastofnun tölvubréf 24. nóvember 2011 með skýringum á því hvers vegna hann hætti námi. Í tölvubréfinu segir kærandi að hann hafi hætt í skóla þar sem hann hafi ekki átt pening til að halda sér uppi. Hann eigi ekki rétt á námslánum og hafi því ákveðið að fara í atvinnuleit og stefna aftur á háskólanám á næstu önn.

 

Í kæru til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 6. desember 2011, komu fram frekari skýringar kæranda. Þar greinir kærandi frá því að hann hafi þurft að segja sig úr skólanum af fjárhagslegum ástæðum en hann eigi ekki tilkall til námslána þar sem hann sé á vanskilaskrá. Kærandi kveðst hafa verið búinn að safna sér nægum peningum til að vera á annarri önn en því miður hafi það ekki dugað til að halda honum uppi á þriðju önninni.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerð, dags. 16. mars 2012, kemur fram að í X. kafla laga um atvinnuleysistryggingar sé ákvæði er mæli fyrir um biðtíma sem hinn tryggði skuli sæta ef hann segir starfi upp án gildra ástæðna eða hættir námi án gildra ástæðna. Vísað er í 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og til athugasemda með ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar. Þar sé vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins um hvaða ástæður geti talist gildar. Í greinargerð við 1. mgr. 54. gr. laganna segi að erfitt geti reynst að telja upp endanlega þau tilvik, þ.e. hvaða aðstæður séu gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laganna, og lagareglan sé því matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur fellur að umræddri reglu. Stofnunin skuli líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða og hafa í huga að um íþyngjandi ákvörðun er að ræða. Í dæmaskyni um gildar ástæður í skilningi laganna séu til dæmis nefnd þau tilvik þegar fjölskylda umsækjanda flytur búferlum vegna starfa maka eða vegna heilsufarsástæðna atvinnuleitanda.

 

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem misst hafa starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Gera verði þá kröfu til þeirra er segja starfi sínu upp eða hætta í námi að þeir hafi til þess gildar ástæður.

 

Vinnumálastofnun bendir á að kærandi hafi verið skráður í nám við B á haustönn 2011. Í vottorði frá skólanum komi fram að kærandi hafi sjálfur sagt sig úr námi. Í tölvupósti til Vinnumálastofnunar, dags. 24. nóvember 2011, og í kæru segir kærandi að fjárhagsástæður hafi legið að baki þeirri ákvörðun. Námslok vegna fjárhagslegra örðugleika hafi ekki verið taldar gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. niðurstöður úr fyrri úrskurðum úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í málum nr. 30/2009 og 70/2010. Verði ekki séð að þær ástæður sem kærandi færir fyrir úrsögn sinni úr námi séu á nokkurn hátt frábrugðnar öðrum ástæðum er lúta að fjárhag námsmanns eða að breyttar forsendur hafi verið fyrir áframhaldandi námsþátttöku kæranda. Í ljósi þessara atriða telur Vinnumálastofnun að ástæður kæranda fyrir námslokum hafi ekki verið gildar í skilningi 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda skuli fyrst hefjast þegar umsækjandi hefur verið skráður hjá Vinnumálastofnun án greiðslna atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 19. mars 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 2. apríl 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 27. mars 2012, var kærandi látinn vita um tafir á afgreiðslu málsins vegna gríðarlegs fjölda kærumála hjá úrskurðarnefndinni.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 18. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur hætt námi, sbr. c-lið 3. gr., án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Staðfesting frá viðkomandi skóla um að námi hafi verið hætt skal fylgja umsókninni.

 

Í athugasemdum við 55. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að eðlilegra þyki að þeir sem hætta í námi án þess að hafa til þess gildar ástæður þurfi að sæta sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Skipti þá ekki hvenær á námsönn hlutaðeigandi hætti námi. Gert sé ráð fyrir að vottorð frá hlutaðeigandi skóla um að hann hafi hætt námi fylgi umsókninni. Að öðru leyti er vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins. Þar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður þær, sem kærandi hefur fært fram fyrir því að hann hætti háskólanámi, séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi þessa, sem og röksemda þeirra sem Vinnumálastofnun hefur fært fram í málinu, verður hin kærða ákvörðun staðfest.

 

 

Úrskurðarorð

 

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 6. desember 2011 í máli A um niðurfellingu bótaréttar hans í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

 Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum