Hoppa yfir valmynd
5. desember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 173/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 5. desember 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 173/2011.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 18. október 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hún verið stödd erlendis frá 10. september til 25. september 2011 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að þar sem hún hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði sem ella hefði verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Kæranda var enn fremur tilkynnt að ofgreiddar atvinnuleysisbætur sem hún fékk á tímabilinu 10. september til 19. september 2011 á meðan hún var erlendis yrðu innheimtar skv. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, mótteknu 8. desember 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun hafi verið rétt.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 27. október 2010.

 

Vinnumálastofnun barst rafræn staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá Spáni 20. september 2011. Í kjölfarið sendi Vinnumálastofnun kæranda bréf, dags. 3. október 2011, þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hennar erlendis. Kærandi sendi í kjölfarið tölvupóst til eftirlitsdeildar Vinnumálastofnunar þar sem fram kemur að hún hafi dvalist á B tímabilið 10.–25. september 2011. Stofnunin hafi í kjölfarið óskað eftir því að hún skilaði inn farseðlum sem kærandi hafi gert.

 

Í kæru til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 3. nóvember 2011, greinir kærandi frá því að hún hafi verið erlendis í tvær vikur en henni hafi láðst að tilkynna það áður en hún fór. Hún hafi ákveðið að tilkynna það við heimkomuna en hún hafi komið heim 25. september 2011 eða að tilkynna það fyrir 20. október 2011, en þá átti hún að stimpla sig inn. Hún hafi svo fengið bréf frá Vinnumálastofnun 3. október 2011 þar sem henni hafi verið tilkynnt að stofnunin hefði fengið upplýsingar um veru hennar erlendis. Kærandi greinir frá því að það hafi ekki verið ætlunin að tilkynna ekki um fjarveru sína.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða dags. 16. mars 2012, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segir að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

 

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

 

Vinnumálastofnun áréttar að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga, að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið stödd erlendis á sama tíma og hún var skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt flugfarseðlum hafi hún verið stödd á B 10.‒25. september 2011.

 

Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram um þessa ferð sína til útlanda, eins og henni bar skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun bárust ekki skýringar á því hvers vegna kærandi tilkynnti ekki um ferð sína til stofnunarinnar. Vinnumálastofnun vísar til þess sem kærandi segir í kæru um að það hafi ekki verið ætlun kæranda að tilkynna ekki um fjarveru sína. Vinnumálastofnun segir að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun bendir á að einu undanþágur frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VII. kafla laganna. Bent er á að sérstök athygli sé vakin á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim sem hugi að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit, sé bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag. Þá vekur stofnunin athygli á því að í þeim tilvikum sem Vinnumálastofnun er tilkynnt um slíkar fyrirfram sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að hann fái ekki atvinnuleysisbætur á meðan hann dvelst erlendis.

 

Fram kemur að það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Enn fremur sé það mat stofnunarinnar að kærandi fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem hún dvaldist erlendis.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar dags. 21. mars 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 4. apríl 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 27. mars 2012, var kærandi látinn vita um tafir á afgreiðslu málsins vegna gríðarlegs fjölda kærumála hjá úrskurðarnefndinni

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009 og 3. gr. laga nr. 153/2010, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi.

 

Kærandi hefur staðfest að hún var stödd erlendis dagana 10.‒25. september 2011, en tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að hún hafi ætlað að láta stofnunina vita af ferðinni en henni hafi láðst að gera það áður en hún fór. Engum gögnum er til að dreifa sem styðja þessa fullyrðingu. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

 

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún þáði á meðan hún var stödd erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar

 

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

 


Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 18. október 2011 í máli A um niðurfellingu bótaréttar hennar í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 10. til 19. september 2011 er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum