Hoppa yfir valmynd
25. september 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 155/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 25. september 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 155/2011.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dagsettu 31. október 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 28. október 2011 fjallað um rétt kæranda til atvinnuleysisbóta. Umsóknin var samþykkt en með vísan til starfsloka hjá B var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 19. september 2011. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 11. nóvember 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

 

Kærandi sagði starfi sínu hjá B lausu í september 2011. Hann sótti um atvinnuleysisbætur 7. október 2011. Í vottorði vinnuveitanda, B, dags. 13. október 2011, er ástæða starfsloka tilgreind sem eigin uppsögn kæranda. Meðal gagna sem fylgdu kæru til úrskurðarnefndarinnar var erindi frá stéttarfélaginu Eflingu, dags. 9. nóvember 2011, og bréf frá Vinnueftirlitinu, frá 9. nóvember 2011. Í bréfi stéttarfélagsins er skýrt frá því að kærandi hafi leitað til félagsins sökum þess að hann hafi talið sig vera á of lágum launum. Við athugun á máli kæranda hafi komið í ljós að kærandi hafi verið á réttum launum. Þá kemur fram að kærandi hafi leitað til Vinnueftirlits ríkisins vegna umkvartana hans um aðbúnað á vinnustað og fengið tiltal hjá yfirmönnum í kjölfar þess. Í bréfi frá Vinnueftirlitinu, dags. 9. nóvember 2011, sem einnig fylgdi kæru, segir að kærandi hafi leitað til Vinnueftirlitsins 23. september 2011 vegna ótilhlýðilegrar háttsemi af hendi yfirmanns á vinnustað, skorts á þrifum og að kærandi hafi ekki fengið lögbundinn öryggisbúnað. Hafi kærandi lagt fram skriflega kvörtun. Ekki kemur fram í bréfinu að gerðar hafi verið athugasemdir við öryggisbúnað á vinnustaðnum eða hvort brugðist hafi verið við kvörtunum kæranda að einhverju leyti.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinumarkaðsaðgerða, dags. 18. janúar 2012, vísar stofnunin til þess að í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

 

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða aðstæður liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi orðalagið gildar ástæður verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik fallið í raun þar undir. Ágreiningur milli launamanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma, aðstæður á vinnustað o.s.frv. flokkist ekki sem gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að mati Vinnumálastofnunar og með vísan til fordæma úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

Til umfjöllunar sé hvort uppsögn kæranda geti talist gild ástæða í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telji að í þeim tilvikum sem óánægja starfsmanns með vinnuumhverfi sitt sé ástæða starfsloka, þurfi sá er hlut eigi að máli a.m.k. að hafa gert tilraunir til úrbóta áður en hann taki ákvörðun um að segja starfi sínu lausu. Af gögnum máls megi sjá að kærandi leitaði til Vinnueftirlitsins föstudaginn 23. september 2011. Samkvæmt skýringabréfi kæranda hafi hann sagt starfi sínu lausu miðvikudaginn 28. september 2011 eða þremur virkum dögum eftir að hann leitaði til Vinnueftirlitsins. Verði ekki fallist á að kærandi hafi veitt vinnuveitanda sínum raunverulegt svigrúm til að bregðast við kvörtunum kæranda til Vinnueftirlits. Vinnumálastofnun telji því að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Sé það mat Vinnumálastofnunar að ágreiningur milli launamann og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma, aðstæður á vinnustað flokkist almennt ekki sem gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 23. janúar 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 6. febrúar 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

 

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

 

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Kærandi sagði sjálfur upp störfum sínum hjá B 30. september 2011, án þess að vera með annað starf í hendi. Að sögn kæranda var ástæða uppsagnar óánægja með framkomu samstarfsmanns, skortur á þrifum og að kærandi hafi ekki fengið lögbundinn öryggisbúnað til nota við vinnu sína. Kærandi gerði tilraunir til þess að færa hluti til betri vegar og leitaði til stéttarfélagsins Eflingar 19. ágúst 2011. Þar var honum vísað á Vinnueftirlitið og lagði hann fram skriflega kvörtun til Vinnueftirlitsins 23. september 2011. Kærandi hætti störfum nokkrum dögum síðar eða 30. september 2011 eins og fram hefur komið. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða telur, með vísan til framanskráðs og gagna málsins, að kærandi hafi ekki veitt atvinnuveitanda sínum raunhæft svigrúm til þess að koma til móts við athugasemdir hans og aðfinnslur.

 

Með vísan til alls framanritaðs er það mat úrskurðarnefndarinnar að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.


 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 28. október 2011 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

 Hulda Rós Rúríksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum