Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 96/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 4. apríl 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 96/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 1. júlí 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hann verið staddur erlendis frá 14. mars til 2. júní 2011 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Jafnframt hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 1. júlí 2011. Vinnumálastofnun taldi að kærandi hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu frá 14. mars til 19. mars 2011 sem honum bæri að endurgreiða með 15% álagi skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 13. júlí 2011. Kærandi krefst þess að hann fái að halda 80% atvinnuleysisbótum á móti 20% hlutastarfi þó starfið hafi kallað á dvöl hans erlendis jafnt sem hér á landi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 25. nóvember 2008.Vinnumálastofnun barst rafræn staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá erlendu upprunalandi, þann 24. mars 2011. Í kjölfarið sendi Vinnumálastofnun kæranda bréf þann 8. apríl 2011, þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hans erlendis og honum veittur frestur til þess að koma skýringum sínum á framfæri. Mál kæranda var tekið fyrir á fundi stofnunarinnar þann 4. maí 2011. Þar sem engar upplýsingar höfðu borist frá kæranda voru greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans stöðvaðar. Þann 7. júní 2011 upplýsti kærandi að hann hefði dvalið erlendis tímabilið 14. mars til 2. júní 2011 vegna starfa hans hjá sprotafyrirtækinu X.

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 13. júlí 2011, segir kærandi að hann hafi farið til útlanda vegna þess að rekstur sprotafyrirtækisins sem hann sé í hlutastarfi hjá kalli á viðveru erlendis. Hann spyr hvort hann geti nýtt sér undanþágu vegna atvinnuleitar erlendis á þeim forsendum að dvöl hans erlendis sé í þeim eina tilgangi að skjóta stoðum undir rekstur fyrirtækisins svo það geti í framhaldinu veitt bæði honum og öðrum atvinnu. Kærandi kveður það rétt að hann hafi látið hjá líða að tilkynna formlega að hann væri erlendis. Hann hafi verið nýkominn úr vinnumarkaðsúrræði og hafi átt mjög náið samráð við tengilið hjá Vinnumálastofnun um hvort hann ætti rétt á frekari aðstoð þar sem öll spil hafi verið lögð á borðið, í desember 2010. Í febrúar 2011 hafi stjórn X ákveðið að auka sókn á Bandaríkjamarkaði og að hann skyldi eyða hluta af tíma sínum þar. Það hafi alltaf verið ljóst að X sé eingöngu gert fyrir enskumælandi markað og hafi kærandi talið að það að vera í hlutastarfi fyrir slíkt fyrirtæki og þiggja hlutabætur á móti væri annað en að vera á fullum bótum og ferðar erlendis.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 17. ágúst 2011, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segir að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda um greiðslu atvinnuleysistrygginga að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Það sé óumdeilt að kærandi hafi verið staddur erlendis á sama tíma og hann hafi verið skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun og hafi hann ekki tilkynnt fyrirfram um utanlandsferð sína líkt og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar á það að í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar spyrji kærandi að því hvort ekki megi nýta heimild undanþágu vegna atvinnuleitar erlendis í hans tilviki. Hann geri kröfu um að fá greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann hafi dvalið erlendis sem og að ákvörðun Vinnumálastofnunar um viðurlög skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verði felld niður. Stofnunin bendir á að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi. Einu undanþágurnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Sé sérstaklega vakin athygli á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim, sem hugi að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit hjá stofnuninni, sé bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu fyrir brottfarardag. Þá veki Vinnumálastofnun athygli á því að í þeim tilvikum sem stofnuninni sé tilkynnt um slíkar ferðir fyrirfram sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að, nema fyrir liggi E-303 vottorð hjá stofnuninni, hann fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dveljist erlendis. Vinnumálastofnun sé ekki heimilt að veita sérstaka undanþágu á c-lið 13. gr. eða VIII. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á grundvelli þess að kærandi hafi verið í hlutastarfi á þeim tíma er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 18. ágúst 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 1. september 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma ea viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur staðfest að hann var staddur erlendis frá 14. mars til 2. júní 2011, en hann tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að rekstur sprotafyrirtækisins sem hann sé í hlutastarfi hjá kalli á viðveru erlendis og hann fer fram á að nýta undanþáguheimild laganna í því sambandi.

Einu undanþágurnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru í VIII. kafla laganna. Samkvæmt 42. og 43. gr. í VIII. kafla um atvinnuleit erlendis er Vinnumálastofnun heimilt að greiða atvinnuleysisbætur í allt að þrjá mánuði skv. VII. kafla til þess sem teljist tryggður og er í atvinnuleit í öðru aðildarríki að uppfylltum þeim skilyrðum að umsækjandi hafi sótt um og fengið samþykkt E-303 vottorð til atvinnuleitar erlendis. Ekki liggur fyrir að kærandi hafi fengið slíkt vottorð.

Í máli Vinnumálastofnunar hefur komið fram að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann þáði á meðan hann var staddur erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysistrygginga, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 28. júní 2011 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 14. mars til 19. mars 2011 er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum