Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 49/2013

Þriðjudaginn 11. febrúar 2014


A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 20. nóvember 2013 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 19. nóvember 2013. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 23. október 2013, þar sem hún var krafin um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 22. nóvember 2013, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 9. desember 2013.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 11. desember 2013, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust.

 

I. Málsatvik.

Kærandi var í fæðingarorlofi í tólf mánuði frá fæðingardegi barnsins, þann Y. maí 2012. Í stað þess að snúa aftur til starfa til fyrrum vinnuveitanda sagði kærandi upp störfum og fékk í kjölfarið greitt ótekið orlof frá vinnuveitanda. Greiðslan var greidd þann 1. júní 2013. Fæðingarorlofssjóður sendi kæranda greiðsluáskorun, dags. 23. október 2013, þar sem kærandi var krafinn um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar fyrir maímánuð 2013 þar sem sjóðurinn leit svo á að framangreind greiðsla frá vinnuveitanda kæranda hafi verið svo há og þess eðlis að hún kæmi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. 

 

II. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hún hafi fengið senda greiðsluáskorun frá Fæðingarorlofssjóði vegna ofgreidds fæðingarorlofs fyrir maí 2013. Málsatvik séu þau að kærandi hafi sagt upp störfum og því fengið greitt ótekið orlof. Kærandi hafi óskað eftir því að orlofið yrði greitt mánuði síðar en vinnuveitandi hafi ekki orðið við því.

Kæranda finnist ósanngjarnt að líta svo á að útborgun ótekins orlofs skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði þar sem ekki sé um útborgun launa að ræða. Því krefjist kærandi þess að endurkrafa Fæðingarorlofssjóðs verði felld niður.

 

III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. september 2013, vakið athygli kæranda á því að stofnunin hafi verið með til meðferðar mál hennar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hefði kærandi verið að fá laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðli fyrir maí 2013 ásamt útskýringum frá vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Skýringar hafi borist frá vinnuveitanda kæranda, dags. 30. september 2013, ásamt útskýringum kæranda sjálfs með tölvupósti, dags. 3. október 2013. Jafnframt hafi umbeðinn launaseðill borist. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 23. október 2013, þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar ásamt 15% álagi. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. maí 2012 og innsendum skýringum og launaseðli að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir maí 2013 skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000 (ffl.), sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Samkvæmt 10. mgr. 13. gr. ffl. skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris.

Ákvörðun í máli þessu hafi verið tekin eftir álit setts umboðsmanns Alþingis í máli nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013 og í samræmi við álitið og úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála sem hafi verið kveðnir upp eftir álit setts umboðsmanns.

Samkvæmt 4. mgr. 33. gr. ffl. komi fram að foreldri sem njóti orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka geti ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði skv. ffl. á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um.

Í 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni hafi foreldri fært rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Gerð hafi verið krafa um 15% álag í greiðsluáskorun, dags. 23. október 2013, en rétt sé að fella niður álagið að mati Fæðingarorlofssjóðs enda liggi fyrir fullnægjandi skýringar um að kæranda verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunarinnar.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hennar verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau lækkað í X kr. Miðað hafi verið við viðmiðunarlaun kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 44. gr. ffl. Enga heimild sé að finna í ffl. eða í reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, nr. 1218/2008, að taka tillit til launabreytinga foreldris eftir fæðingardag barns við mat á hugsanlegri ofgreiðslu.

Í maí 2013 hafi kærandi þegið X kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði henni því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni á X og fjárhæð greiðslu Fæðingarorlofssjóðs eða X kr. án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK fyrir maí 2013 hafi kærandi þegið X kr. í laun. Á launaseðli komi fram að kærandi hafi fengið greidda orlofsuppbót að fjárhæð 17.001 kr. í mánuðinum sem sé undanskilinn við útreikning á ofgreiðslu, sbr. heimild til þess í 4. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl. Þannig hafi verið miðað við X kr. við útreikning á ofgreiðslu kæranda. Hún hafi því fengið X kr. hærri greiðslu frá vinnuveitanda sínum en hún hafi mátt og því beri kæranda að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir maí 2013 sé því X kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

Þannig liggi ljóst fyrir að sú greiðsla sem kærandi hafi fengið frá vinnuveitanda sínum í maí 2013 sé uppgjör á orlofi eða orlofslaun. Ljóst sé að útborgun ótekins orlofs teljist til réttinda sem séu ósamrýmanleg fæðingarorlofsgreiðslum skv. 4. mgr. 33. gr. ffl. og úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í máli nr. 64/2012.

Í úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í máli nr. 64/2012, sem hafi verið kveðinn upp eftir álit setts umboðsmanns Alþingis í máli nr. 7022/2012, hafi reynt á sambærileg álitaefni og í þessu máli. Í úrskurðinum hafi nefndin fjallað um hvernig túlka ætti ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. um orlofslaun og greiðslur vegna starfsloka um sama tímabil og þær greiðslur eigi við um sérstaklega með hliðsjón af orðalagi 10. mgr. 13. gr. um greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi.

Nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið unnt að fallast á að í ákvæðunum hafi verið vísað til þess tímabils þegar unnið sé til orlofslauna. Launþegar vinni almennt til orlofslauna allt árið, en þær greiðslur sem þeir ávinna sér séu ætlaðar til orlofstöku yfir sumarmánuði, eða eftir atvikum til dæmis við starfslok.

Af framangreindu verði því að teljast ljóst að greiðslan eigi við um það tímabil sem kærandi hafi verið í fæðingarorlofi og ekki verði hægt að dreifa henni á annað eða lengra tímabil en greiðslutímabilið sjálft, þ.e. maí 2013.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað sem gerð sé krafa um. Ekki sé gerð krafa um 15% álag líkt og gert hafi verið í greiðsluáskorun, dags. 23. október 2013.

 

IV. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. maí 2012.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum í maí 2013 á sama tíma og hún þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Séu þessar greiðslur frá vinnuveitanda svo háar og þess eðlis að þær leiði til lækkunar á rétti til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Kærandi byggir á því að þar sem umrædd greiðsla hafi verið útborgun ótekins orlofs við starfslok skuli hún ekki koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Í gögnum málsins kemur fram að umrædd greiðsla frá vinnuveitanda sé gefin upp í staðgreiðsluskrá RSK í maímánuði 2013. Í framlögðum launaseðli er útborgunin tilgreind með skýringunni „Maí-Júní“. Í staðfestingu frá launadeild sveitarfélagsins Z kemur skýrlega fram að orlofið hafi komið til greiðslu 1. júní.

Í málinu hefur að öðru leyti ekki verið fjallað sérstaklega um það álitaefni hvort greiðslan sé innt af hendi í maí eða júní og hvort hún er ætluð fyrir tímabil fyrir eða eftir þau mánaðamót þegar hún var innt af hendi.

Nærtækasti skýringarkosturinn varðandi það álitaefni fyrir hvaða tímabil orlofslaun séu ætluð, sem greidd eru út um mánaðamót þegar starfslok verða, virðist sá að orlofið hefjist við starfslok og greiðslurnar séu vegna þess tímabils sem þá hefst.

Með hliðsjón af þessu verður hin kærða ákvörðun felld úr gildi.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Hin kærða ákvörðun er felld úr gildi.

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum