Hoppa yfir valmynd
13. desember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 33/2012

Fimmtudaginn 13. desember 2012

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 20. mars 2012 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 16. mars 2012. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 17. janúar 2012, um endurkröfu Fæðingarorlofssjóðs á útborgaðri fjárhæð frá Fæðingarorlofssjóði ásamt viðbættu álagi.

Með bréfi, dags. 21. mars 2012, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 25. mars 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 27. mars 2012, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum.

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hann hafi ákveðið að taka 50% fæðingarorlof í sex mánuði og vinna hálfan dag á móti. Hann hafi átt við mikil veikindi að stríða síðasta eina og hálfa árið. Hann hafi búið í húsnæði sem hafi verið heilsuspillandi vegna rakasvepps.

Kærandi kveður ástæðu þess að tveir launaseðlar hafi verið óeðlilega háir vera þá að hann hafi ekki átt annarra kosta völ en að flytja úr hinu heilsuspillandi húsnæði og í aðra íbúð sem allra fyrst eftir að rakasveppur hafi komið í ljós í fyrri íbúðinni. Þau laun sem kærandi hafði haft hafi ekki dugað fyrir því greiðslumati sem kærandi hafi þurft vegna lána fyrir kaupum á nýrri íbúð. Kærandi tekur fram að flutningunum hafi fylgt mikil útgjöld þar sem nauðsynlegt hafi verið að henda nánast allri búslóð hans samkvæmt ráðleggingum sérfræðings.

Kærandi hafi verið mjög veikur og því ekki hugsað það til enda þegar hann hafi beðið bókara sinn um að hækka við sig launin svo hann gæti keypt nýja íbúð. Kærandi segir bókarann hafa gert mistök með því að gera ekki athugasemd við þessa tvo háu launaseðla sem um ræði þar sem kærandi hafi enn átt eftir tvo mánuði í 50% fæðingarorlofi.

Kærandi vekur athygli á því að fyrir fæðingarorlofið hafi hann aldrei haft há laun og viðurkennir að það geti talist langsótt að ræða veikindi sín í þessu samhengi en telji það engu að síður eina möguleika sinn á því að sýna fram á að þessar ofgreiðslur séu allar byggðar á misskilningi og telji því ekki að um sé að ræða geymdar greiðslur eins og bréf Fæðingarorlofssjóðs, dags. 17. janúar 2012, hljóði upp á. Eins vilji kærandi koma því á framfæri að hann sé mjög heiðarlegur og borgi sína skatta og skyldur á réttum tíma.

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. október 2011, vakið athygli kæranda á því að stofnunin væri með til meðferðar mál hans vegna hugsanlegrar ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði fyrir febrúar–júlí 2011. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hefði hann fengið laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hann þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Tvö bréf hafi borist frá bókara fyrirtækis kæranda, dags. 28. október 2011 og 7. desember 2012, yfirlit um greidda vinnutíma hjá fyrirtækinu, ráðningarsamningur, tölvupóstar frá kæranda, dags. 1. nóvember 2011 og 12. desember 2012, ásamt launaseðlum fyrir tímabilið. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 17. janúar 2012, þar sem hann hafi verið krafinn um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar fyrir tímabilið ásamt 15% álagi. Sjóðurinn hafi litið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. febrúar 2011 og innsendum gögnum og skýringum að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði skv. 9. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl. og 15. gr. b ffl.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. sé fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, sem hafi verið í gildi við fæðingardag barns kæranda sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemi þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof segir enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skulu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris. Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, segi orðrétt:

Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.

Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, segi orðrétt:

Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.

Í 15. gr. b ffl., sbr. b-lið 6. gr. laga nr. 90/2004 og 13. gr. laga nr. 74/2008, komi fram að Vinnumálastofnun skuli annast eftirlit með framkvæmd laganna. Í athugasemdum með 15. gr. b ffl., sbr. b-lið 6. gr. laga nr. 90/2004, segi orðrétt:

Lagt er til að fela [skattyfirvöldum] eftirlit með framkvæmd laganna. Er hér einkum átt við að fylgst verði með því að foreldrar leggi sannanlega niður störf í fæðingarorlofi. Er það einn af lykilþáttum laganna að foreldrar leggi niður störf til að annast börn sín enda greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði ætlað að bæta tekjutap foreldra vegna þess. Á sama hátt er ekki gert ráð fyrir að foreldrar eigi að hagnast á greiðslum úr sjóðnum þannig að um viðbót sé að ræða við tekjur þeirra fyrir sama tímabil. Í þeim tilvikum þegar grunur leikur á að foreldrar leggi ekki niður launuð störf í fæðingarorlofi er mikilvægt að [skattyfirvöld] fylgist með staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldaskrá þann tíma sem fæðingarorlofi var ætlað að standa yfir í því skyni að ganga úr skugga um að hlutaðeigandi hafi ekki á sama tíma haft hærri tekjur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris. Þá hefur grunur vaknað um að foreldrar sem starfa á þeim tíma sem þeir eru skráðir í fæðingarorlof fái launagreiðslurnar greiddar á næstu mánuðum á eftir. Er því gert ráð fyrir að [skattyfirvöld] fylgist með staðgreiðsluskrá foreldra eftir að foreldri hóf störf að nýju eftir fæðingarorlof. Verði foreldrar uppvísir að slíku broti á lögunum er lagt til í frumvarpi þessu að það geti varðað sektum, sbr. 10. gr. frumvarps þessa. Þá er lagt til að [félagsmálaráðherra] hafi heimildir til að fela öðrum eftirlitið með framkvæmd laganna en honum er jafnframt ætlað að setja nánari reglur í reglugerð um framkvæmd eftirlitsins þyki ástæða til þess.

Í athugasemdum við 4. gr. laga nr. 90/2004 er umfjöllun um hvað átt sé við með upphafsdegi fæðingarorlofs. Þar komi meðal annars fram að reynt hafi á þetta atriði í erindum til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála þar sem foreldrar hafi ekki viljað líta heildstætt á rétt sinn til fæðingarorlofs. Hafi feður viljað miða við síðara tímamark en fæðingu barns, þ.e. við þann tíma sem þeir sjálfir hefji töku orlofs. Sú skýring hafi þótt brjóta gegn þágildandi lögum nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, (nú lög nr. 10/2008) í ljósi þess að karlar ættu hægara um vik en konur að vinna sér inn réttinn eftir að barnið fæðist. Þessu til stuðnings hafi verið á það bent að réttur til fæðingarorlofs stofnist við fæðingu barns, sbr. 2. mgr. 8. gr. laganna. Því hafi þótt rétt að hafa samræmi milli ákvæða laganna þannig að um sömu viðmið væri að ræða enda tilgangur laganna að líta heildstætt á rétt foreldra til fæðingarorlofs. Þegar um væri að ræða fæðingarorlof vegna fæðingar var því gert ráð fyrir að miðað væri við áætlaðan fæðingardag barns, sbr. 2. mgr. 8. gr. laganna. Með 8. gr. laga nr. 74/2008 hafi því verið breytt í fæðingardag barns í stað áætlaðs fæðingardag barns.

Í samræmi við framangreint sé við mat á núgildandi 10. mgr. 13. gr. ffl. (var áður 9. mgr. 13. gr. ffl.) ekki heimilt að taka tillit til hugsanlegra breytinga á launum foreldris eftir fæðingardag barns. Einungis sé heimilt að taka tillit til hugsanlegra launabreytinga á því tímabili frá því að viðmiðunartímabili skv. 2. eða 5. mgr. ljúki og fram að fæðingardegi barns.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, komi fram hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, sé stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld séu skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé frekari upptalning á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitenda megi fara með og hvaða greiðslur megi ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það séu sem sjóðurinn telji með þegar fundið sé út meðaltal heildarlauna foreldris.

Í 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því hafi borið samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni hafi foreldri fært rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Ekki hafi komið fram nein rök sem gefi tilefni til að fella niður 15% álag á kæranda.

Litið sé svo á að kærandi hafi annars vegar fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. 9. mgr. 13. gr. ffl., í júní og júlí 2011 þar sem greiðslur frá vinnuveitanda kæranda fyrir tímabilið séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltali heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. og kærandi hafi haldið óskertum launum þá mánuði. Hins vegar sé litið svo á að greiðsla til kæranda í júní 2011 inniberi jafnframt geymdar greiðslur vegna tímabilsins febrúar–maí 2011. Kærandi hafi þannig haldið óskertum launum frá vinnuveitanda sínum allt tímabilið febrúar–júlí 2011.

Með umsókn kæranda, dags. 6. desember 2010, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í þrjá mánuði vegna barns hans sem fæddist Y. febrúar 2011. Ein tilkynning hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs sem hafi verið á þann veg að kærandi sótti um 50% orlof á mánuði mánuðina febrúar–júlí 2011 samhliða vinnu í skertu starfshlutfalli og hafi hann verið afgreiddur í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 8. febrúar 2011.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hans verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við, sbr. meðal annars staðgreiðsluskrá RSK. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda honum til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 9. mgr. 13. gr. ffl. (nú 10. mgr. 13. gr. ffl.). Enga heimild sé að finna í ffl. eða reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrkja, að taka tillit til launabreytinga foreldris eftir fæðingardag barns við mat á hugsanlegri ofgreiðslu.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK sé kærandi með X kr. í laun á mánuði mánuðina október 2010–janúar 2011 en í febrúar fæddist barn hans og hann hóf fæðingarorlof í þeim mánuði. Ekki sé hægt að taka tillit til hugsanlegra launahækkana kæranda frá því tímamarki.

Í skýringum bókara fyrirtækis kæranda Eldhafs ehf., en kærandi er eigandi fyrirtækisins, dags. 28. október 2011, komi fram að þau mistök hafi verið gerð að launin hafi verið reiknuð of há. Hún hafi verið með fyrirmæli um að hækka launin um leið og fæðingarorlofi lyki en gerði það of snemma. Eingöngu hafi fjórir mánuðir verið á 50% launum í stað sex mánaða. Þá hafi launahækkunin verið hærri en hún hafi átt að vera.

Í tölvupósti kæranda, dags. 12. mars 2012, komi fram að fyrstu fjórir launaseðlarnir séu réttir og í samræmi við laun hans marga mánuði áður en hann hafi farið í fæðingarorlof. Eins og rakið hefur verið hér að framan og í samræmi við staðgreiðsluskrá RSK sé það ekki rétt. Kærandi hafi verið með X kr. í laun á mánuði frá október 2010 fram að fæðingardegi barns og upphafi fæðingarorlofs en strax í fyrsta mánuði fæðingarorlofs séu mánaðarlaun hækkuð í X kr. þannig að kærandi hafi fengið X kr. frá vinnuveitanda sínum, sbr. launaseðla og staðgreiðsluskrá RSK. Aðrar skýringar í tölvupósti kæranda hafi tengst persónulegum aðstæðum og íbúðarkaupum og að bókarinn hafi þurft að hækka laun hans í tvo mánuði til að fá hærra greiðslumat við íbúðarkaupin. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK og meðfylgjandi launaseðlum sé það heldur ekki rétt. Laun kæranda hafi hækkað talsvert í júní 2011 og hafi verið um X kr. á mánuði síðan þá fyrir utan október 2011 þegar engin laun séu gefin upp á hann.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK séu laun kæranda í febrúar–apríl 2011 X kr. Í maí 2011 séu laun hans X kr. Í júní 2011 séu þau X kr. og í júlí 2011 séu þau X kr. Samkvæmt launaseðlum sé launataxti fyrir febrúar–maí X kr. og kærandi hafi fengið 50% af þeirri fjárhæð. Í júní 2011 sé launataxtinn X kr. og litið sé svo á að X kr. af þeirri fjárhæð séu geymdar greiðslur vegna tímabilsins febrúar–maí 2011.

Í samræmi við allt framangreint verði ekki betur séð en kærandi hafi greitt sér full laun í júní og júlí 2011 og að X kr. af launafjárhæð í júní séu geymdar greiðslur vegna febrúar–maí eða X kr. fyrir hvern mánuð fyrir sig þannig að laun fyrir þá mánuði séu þannig X kr. sem sé sama launafjárhæð og kærandi hafi verið með frá október 2010 fram að upphafi fæðingarorlofs. Í samræmi við það beri kæranda að greiða Fæðingarorlofssjóði til baka alla þá fjárhæð sem hann hafi fengið útborgaða úr sjóðnum.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað að viðbættu 15% álagi X kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. greiðsluáskorun, dags. 17. janúar 2012.

III. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. febrúar 2011.

Í hinni kærðu ákvörðun er byggt á því að kærandi hafi fengið of háar greiðslur frá vinnuveitanda sínum mánuðina febrúar til og með júlí 2011, á sama tíma og hann þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu Y. febrúar 2011. Þá hafi hluti launagreiðslu fyrir júní 2011 falið í sér geymdar greiðslur fyrir mánuðina febrúar til maí 2011.

Kærandi byggir á því að laun sín hafi verið hækkuð á þessum tíma fyrir mistök bókara, en ætlunin hafi verið að hækka við hann laun eftir að hann lyki fæðingarorlofi og ástæða þeirrar launahækkunar hafi verið greiðslumat vegna íbúðarkaupa. Kærandi hafnar því að um hafi verið að ræða geymdar greiðslur.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. febrúar 2011. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá ágúst 2009 til júlí 2010. Í greiðsluáætlun, dags. 9. febrúar 2011, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því X kr. Miðað við 50% orlof væri greiðsla úr sjóðnum þannig X kr., sem er sú fjárhæð sem kærandi fékk greitt mánuðina febrúar til og með júlí 2011. Af útreikningi á endurgreiðslukröfu á hendur kæranda, sem fylgdi hinni kærðu ákvörðun frá 17. janúar 2012, má sjá að litið var til launa kæranda eftir að viðmiðunartímabili lauk og miðað við X kr. meðallaun við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs. Er það samkvæmt heimild í 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, til hækkunar á meðaltals heildarlaunum vegna launahækkana eftir lok viðmiðunartímabils en fyrir fæðingu barns. Er það kæranda til hagsbóta.

Í athugasemdum við 4. gr. laga nr. 90/2004, sem breytti ákvæði 13. gr. ffl., segir að mikilvægt sé að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim sé ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Sé því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó sé heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geti orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geti talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Þá kemur fram í athugasemdunum að með upphafsdegi fæðingarorlofs sé átt við áætlaðan fæðingardag barns, sbr. 2. mgr. 8. gr., en við 2. umræðu frumvarpsins á Alþingi voru þær breytingar gerðar á frumvarpinu að miða skyldi við raunverulegan fæðingardag barns en ekki áætlaðan. Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. febrúar 2011 og koma því launahækkanir kæranda eftir það tímamark ekki til skoðunar. Þegar af þeirri ástæðu er ekki heimild til að taka til greina málsástæðu kæranda sem lýtur að launabreytingum vegna breytinga á störfum hans eftir fæðingardag barnsins, eða í febrúar 2011.

Með vísan til framangreinds er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við X kr., líkt og gert er í hinni kærðu ákvörðun, en það er meðaltal heildarlauna kæranda samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK frá því að viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. lauk og fram að fæðingu barns hans.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK var kærandi með X kr. í laun á mánuði mánuðina október 2010–janúar 2011. Í febrúar hóf kærandi töku fæðingarorlofs og í þeim mánuði voru mánaðarlaun hans hækkuð í X kr. þannig að kærandi fékk X kr. frá vinnuveitanda sínum fyrir 50% starfshlutfall, sbr. launaseðla og staðgreiðsluskrá RSK. Þá hækkuðu laun kæranda í júní 2011 þegar laun hans voru X kr. og voru um X kr. á mánuði frá og með júlí 2011 fyrir utan október 2011 þegar engin laun voru gefin upp.

Tekið er undir þau sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs að nægilega sé sýnt fram á að hluti greiddra launa fyrir júnímánuð 2011 séu geymdar greiðslur fyrir febrúar til maí 2011, með því móti að kærandi hafi í reynd haft X kr. fyrir þá mánuði, svo sem hann hafði haft síðustu fjóra mánuðina áður en hann fór í fæðingarorlof. Er ekki að mati nefndarinnar unnt að leggja bréf bókara launagreiðandans til grundvallar en fullyrðingar hennar standast ekki, svo sem rökstutt er í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs, auk þess sem ekki verður litið framhjá því að kærandi er eigandi fyrirtækisins.

Í samræmi við allt framangreint verði ekki betur séð en kærandi hafi greitt sér full laun í júní og júlí 2011 og að X kr. af launafjárhæð í júní séu geymdar greiðslur vegna febrúar–maí eða X kr. fyrir hvern mánuð fyrir sig þannig að laun fyrir þá mánuði séu þannig X kr. sem sé sama launafjárhæð og kærandi hafi verið með frá október 2010 fram að upphafi fæðingarorlofs. Í samræmi við það beri kæranda að greiða Fæðingarorlofssjóði til baka alla þá fjárhæð sem hann hafi fengið útborgaða úr sjóðnum. Verður sú staðreynd að kærandi fékk ekki greidd laun fyrir októbermánuð ekki talin breyta þeirri niðurstöðu, en þá var ljóst að Fæðingarorlofssjóður var með hugsanlega ofgreiðslu til kæranda til skoðunar.

Í 2. mgr. 15. gr. a, sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar, en skv. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, skal kærandi færa rök sín fram innan fjögurra vikna frá því að greiðsluáskorun sannanlega barst honum. Að mati úrskurðarnefndarinnar hefur kærandi hins vegar ekki fært fullnægjandi rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til endurkröfu Fæðingarorlofssjóðs.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja A um greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að viðbættu 15% álagi er staðfest.

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum