Hoppa yfir valmynd
8. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 16/2011

Fimmtudaginn 8. september 2011

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 21. júlí 2011 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 18. júlí 2011. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 26. maí 2011, um útreikning á greiðslum og viðmiðunartímabil útreiknings.

Með bréfi, dags. 21. júlí 2011, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 2. ágúst 2011.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 8. ágúst 2011, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi byggir á því að hún uppfylli skilyrði fyrir greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði skv. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.). Samkvæmt útreikningum Fæðingarorlofssjóðs nemi sú fjárhæð sem hún eigi rétt á X kr. á mánuði miðað við 100% orlof. Viðmiðunartímabil til útreiknings á fjárhæðinni miðist við tólf mánaða tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns.

Kærandi greinir frá því að í sex mánuði, þ.e. frá desember 2009 til maí 2010, af þessu tólf mánaða tímabili hafi hún stundað fullt nám og samhliða náminu unnið hlutastarf þar sem starfshlutfallið hafi verið breytilegt, eða á bilinu 0–29% á mánuði. Eftir að samfelldu námi lauk, í byrjun júní 2010, hafi tekið við samfellt starf á almennum vinnumarkaði sem hafi staðið yfir hina sex mánuðina af viðmiðunartímabilinu.

Kærandi greinir frá því að í hennar tilfelli sé tekið tillit til ástundunar náms á viðmiðunartímabili þar sem starfshlutfall á almennum vinnumarkaði sé undir 25% og þeir mánuðir dregnir frá viðmiðunartímabilinu. Þar sem starfshlutfall sé 25% eða meira, þ.e. í febrúar og mars 2010, sé ekki tekið tillit til ástundunar náms heldur einungis þátttöku á vinnumarkaði og séu þeir mánuðir teknir inn í viðmiðunartímabil. Þetta geri það að verkum að mánaðarleg greiðslufjárhæð Fæðingarorlofssjóðs til kæranda lækki töluvert.

Kærandi fer fram á að þeir mánuðir sem hún hafi stundað hlutastarf samhliða fullu námi verði dregnir frá viðmiðunartímabili og aðeins verði miðað við þá mánuði sem stunduð var vinna eftir að námi lauk.

Kærandi greinir frá því að í lögum og reglugerðum um fæðingar- og foreldraorlof sé hvergi að finna fyrirmæli um hvernig útreikningum á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði skuli háttað ef viðkomandi stundar hlutastarf samhliða fullu námi á viðmiðunartímabili. Svo virðist sem tekið sé tillit til þess að viðkomandi stundi fullt nám á viðmiðunartímabili svo lengi sem starfshlutfall á vinnumarkaði fari ekki yfir 25%. Kærandi greinir frá því að sér finnst ekki alveg ljóst eftir hverju sé unnið í þessari ákvörðun og veltir því upp hvort fullt nám sé ekki talið sem vinna fólks, aðeins það hlutastarf sem viðkomandi starfar við til að drýgja tekjur sínar umfram námslán.

Starfshlutfall kæranda á vinnumarkaði hafi verið mjög breytilegt meðan á námi stóð og enginn samningur hafi verið gerður við vinnuveitanda um starfshlutfall heldur hafi það annars vegar miðast eingöngu við þarfir vinnuveitanda hverju sinni og hins vegar við getu kæranda til að koma til móts við þær þarfir samhliða náminu.

Kærandi bendir á að viðmiðunartímabilið eins og það sé sett fram nú samanstandi hvorki af samfelldu námstímabili né samfelldu vinnutímabili, þar sem einungis þeir mánuðir sem vinnan samhliða náminu fari yfir 25% séu metnir inn í viðmiðunartímabilið. Þess vegna líti hún svo á að þeir mánuðir þar sem vinna samhliða námi fór yfir 25% slíti sundur námstímabilið.

Kærandi ítrekar því kröfu sína um að námstími verði metinn samfelldur, sem og tímabil á vinnumarkaði og þeir mánuðir sem stundað hafi verið hlutastarf samhliða fullu námi verði ekki teknir inn í viðmiðunartímabilið umrædda.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi með umsókn, dags. 8. apríl 2011, sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar 11. júní 2011. Auk umsóknar kæranda hafi borist tilkynning um tilhögun fæðingarorlofs, dags. 15. apríl 2011, vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 20. apríl 2011, launaseðlar frá B fyrir febrúar og mars 2011 og staðfesting á námi frá C-háskóla, dags. 2. mars 2011. Enn fremur hafi legið fyrir upplýsingar úr skrám ríkisskattstjóra og Þjóðskrá Íslands.

Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 12. maí 2011, hafi verið óskað eftir staðfestingu á fjölda lokinna eininga á haustönn 2009 og vorönn 2010 ásamt launaseðlum fyrir desember 2009 til apríl 2010 svo unnt væri að meta starfshlutfall kæranda og fjölda lokinna eininga í skóla á því tímabili. Umrædd gögn hafi borist 25. maí 2011.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að í kjölfarið hafi kæranda verið sent bréf, dags. 26. maí 2011, um væntanlegar greiðslur til hennar og þann 27. júní 2011 hafi kæranda verið send greiðsluáætlun með útreikningum á væntanlegum greiðslum þar sem fram komi að mánaðarleg greiðsla verði 123.128 kr. á mánuði miðað við 100% orlof.

Fæðingarorlofssjóður vísar til þess að í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemur þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismun þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum.

Fæðingarorlofssjóður vísar til þess að í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna. Í athugasemdum við 8. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 74/2008 komi fram að átt sé við almanaksmánuði og að áfram sé tekið fram að ekki skuli taka tillit til tekna sem foreldri hefur unnið til utan innlends vinnumarkaðar.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að í 1. mgr. 13. gr. a. ffl. segi að þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Fullt starf miðist við 172 vinnustundir á mánuði, en þó skuli jafnan tekið tillit til fjölda vinnustunda sem samkvæmt kjarasamningi teljist fullt starf. Í 2. mgr. sé síðan talið upp í fimm stafliðum hvað teljist enn fremur til þátttöku á vinnumarkaði:

Til þátttöku á vinnumarkaði telst enn fremur:

a.   orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b.  sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar.

c.   sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dag­peningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d.  sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e.   sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Þá greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að í 3. mgr. 15. gr. ffl. sé kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun aflar um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila skv. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að barn kæranda sé fætt Y. júní 2011 og því skuli, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er þá mánuði sem kærandi var á innlendum vinnumarkaði tímabilið frá desember 2009 til nóvember 2010, sbr. 2. mgr. 13. gr. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl

Fæðingarorlofssjóður greinir einnig frá því að samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram kemur í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telur Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda. Á tímabilinu frá desember 2009 til nóvember 2010 þáði kærandi laun frá B alla mánuðina að maí 2010 undanskildum. Þann mánuð sé staðfest með gögnum frá C-háskóla að kærandi hafi verið í fullu námi. Samkvæmt framangreindu teljist kærandi því ekki hafa verið á innlendum vinnumarkaði þann mánuð og því beri að undanskilja hann við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar. Mánuðina desember 2009 og janúar og apríl 2010 hafi kærandi einnig verið í fullu námi en þegið laun frá B sem tryggingagjald var greitt af. Starfshlutfall kæranda þá mánuði hafi hins vegar ekki náð að vera a.m.k. 25%, sbr. staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra og launaseðla frá kæranda, og því beri einnig að undanskilja þá við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda. Aðra mánuði viðmiðunartímabilsins hafi kærandi verið starfandi í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði og greitt hafi verið tryggingagjald af launum hennar í samræmi við það. Því teljist kærandi hafa verið á innlendum vinnumarkaði þá mánuði, sem ber að hafa með við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar, óháð því að hún hafi á sama tíma stundað fullt nám hluta tímabilsins, sbr. 2. mgr. 13. gr. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl.

Þá bendir Fæðingarorlofssjóður á að í ffl. og í reglugerð, nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks sé ekki að finna neina heimild til þess að víkja frá 2. mgr. 13. gr. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl. við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda.

Með vísan til framangreinds telur Fæðingarorlofssjóður að greiðsluáætlun, dags. 27. júní 2011, beri með sér réttan útreikning á greiðslum til kæranda.

 

III.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði sem tilkynnt var með bréfi, dags. 27. júní 2011.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 2. mgr. 7. gr., í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Einungis skal miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skal þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Í 1. mgr. 13. gr. a. ffl., sbr. 9. gr. laga nr. 74/2008, kemur fram að þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeigandi er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Fullt starf miðast við 172 vinnustundir á mánuði, en þó skal jafnan tekið tillit til fjölda vinnustunda sem samkvæmt kjarasamningi teljast fullt starf.

Barn kæranda er fætt Y. júní 2011 og því er viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. tímabilið desember 2009 til og með nóvember 2010.

Af hálfu kæranda er þess krafist að þeir mánuðir sem kærandi var í a.m.k. 25% vinnu og í fullu námi við C-háskóla verði undanskildir viðmiðunartímabili útreiknings meðaltals heildarlauna hennar og að aðeins verði miðað við þá mánuði sem kærandi var í vinnu eftir að hún lauk námi sínu. Kærandi var í fullu námi við C-háskóla í desember 2009 sem og í janúar til og með maí 2010.

Hvorki er heimilt samkvæmt ffl. né reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, að líta til launa kæranda á öðru tímabili en kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. ffl. við útreikning meðaltals heildarlauna og greiðslna til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði. Með hliðsjón af framangreindu er ekki unnt að fallast á þá kröfu kæranda að miða einungis við þá mánuði á viðmiðunartímabilinu eftir að kærandi lauk skóla.

Viðmiðunartímabil meðaltals heildarlauna kæranda er því tímabilið desember 2009 til og með nóvember 2010. Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra fékk kærandi greidd laun frá B alla mánuði viðmiðunartímabilsins að maí 2010 undanskildum. Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra og launaseðlum kæranda var hún í a.m.k. 25% starfi mánuðina febrúar og mars 2010 og júní til nóvember 2010. Starfshlutfall kæranda var á hinn bóginn minna en 25% í desember 2009 og janúar og apríl 2010 en eins og fyrr greinir var hún ekki að vinna í maí 2010. Kærandi telst því ekki hafa verið á innlendum vinnumarkaði í skilningi 2. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl. í desember 2009, janúar, apríl og maí 2010 og eru þeir mánuðir því undanskildir við útreikning á meðaltali heildarlauna. Hins vegar er ekki að finna heimild, hvorki í ffl. né í reglugerð 1218/2008, til að undanskilja þá mánuði sem kærandi var á innlendum vinnumarkaði í skilningi 2. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl. með fullu námi og af þeirri ástæðu er ekki unnt að fallast á kröfu kæranda.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 27. júní 2011, talin fela í sér réttan útreikning á þeim greiðslum sem kærandi á rétt á úr Fæðingarorlofssjóði, og verður hún því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um útreikning og viðmiðunartímabil greiðslna til A, úr Fæðingarorlofssjóði er staðfest.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum