Hoppa yfir valmynd
27. október 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 30/2010

Miðvikudaginn 27. október 2010

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 19. ágúst 2010 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 18. ágúst 2010. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 17. maí 2010, þar sem hann var krafinn um endurgreiðslu vegna meints oftekins fæðingarorlofs.

Með bréfi, dags. 19. ágúst 2010, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 31. ágúst 2010.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 2. september 2010, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hann hafi sent Fæðingarorlofssjóði umbeðin gögn en þau hafi ekki verið talin breyta niðurstöðu Fæðingarorlofssjóðs um skyldu hans til endurgreiðslu. Jafnframt hafi hann í bréfi til Fæðingarorlofssjóðs, dags. 25. maí 2010, greint frá því að hann hafi unnið óvenju mikla yfirvinnu og vaktir utan dagvinnutíma á tímabilinu 1.–5. júlí 2009 og því hafi laun hans fyrir þann mánuð verið óvenju há. Fæðingarorlofssjóður hafi ekki talið þetta fullnægjandi rök þar sem fyrir lægi að hann hafi fengið sömu laun greidd í öðrum mánuðum ársins 2009. Kærandi greinir frá því að hann sé einyrki og reki fyrirtækið B. Laun hans ráðist mikið af þeim verkefnum sem séu fyrir hendi hverju sinni og þegar lítið sé um verkefni hafi kærandi stundum tekið sér launalaust leyfi sem skýri meðal annars að sömu laun og í júlí séu greidd í fleiri mánuðum.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 17. maí 2010, vakið athygli hans á því að stofnunin væri með mál hans til meðferðar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra hafi kærandi fengið greidd laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðli frá vinnuveitanda kæranda fyrir júlí 2009 ásamt útskýringum frá vinnuveitanda hans og útskýringum og andmælum kæranda sjálfs ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Þá greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að 28. maí 2010 hafi borist umbeðinn launaseðill frá kæranda ásamt bréfi, dags. 25. maí 2010. Í bréfinu komi meðal annars fram að kærandi sé eini starfsmaður B. Þær útskýringar séu gefnar að vegna mikillar yfirvinnu og vakta utan dagvinnutíma fyrstu dagana í júlí 2009, nánar tiltekið 1.–5. júlí, hafi útborguð laun til kæranda verið óvenju há fyrir þessa fáu daga. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 31. maí 2010, þar sem hann hafi verið krafinn um endurgreiðslu útborgaðar fjárhæðar Fæðingarorlofssjóðs vegna júlí 2009. Alls hafi þannig verið gerð krafa um endurgreiðslu á X kr. sem að viðbættu 15% álagi geri X kr., sbr. 9. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 2. mgr. 15. gr. a. ffl.

Þann 16. júlí 2010 hafi borist nýtt bréf frá kæranda, dags. 14. júlí 2010, ásamt launaseðlum fyrir aðra mánuði á árinu 2009 þar sem fram kom að kærandi hafði verið með X kr. á mánuði í laun. Í bréfi kæranda komi fram að greidd laun ráðist mikið af þeim verkefnum sem séu fyrir hendi hverju sinni og kærandi hafi tekið launalaust leyfi þegar verkefnastaða sé þannig að það sé hægt.

Með bréfi til kæranda, dags. 16. júlí 2010, hafi honum verið tilkynnt að viðbótargögn breyttu ekki fyrri ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs í málinu.

Fæðingarorlofssjóður vísar í 1. mgr. 7. gr. ffl. þar sem fram komi að fæðingarorlof sé samkvæmt lögunum leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Jafnframt vísar Fæðingarorlofssjóður í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, þar sem kveðið sé á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemi þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, og úrskurðum úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í málum nr. 41/2009 og 15/2010 skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja má til breytinga á störfum foreldris. Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 segi orðrétt:

„Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.“

Jafnframt greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 segi orðrétt:

„Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.“

Þá greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, komi fram hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, er stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld eru skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé frekari upptalning á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitenda mega fara með og hvaða greiðslur mega ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það séu sem sjóðurinn telur með þegar fundið er út meðaltal heildarlauna foreldris.

Fæðingarorlofssjóður vísar einnig í 15. gr. a. ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, þar sem fjallað sé um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að upphaf málsins megi rekja til þess að við vinnslu umsóknar kæranda með barni fæddu Y. júní 2010 hafi komið í ljós að hann virtist vera að fá of háa greiðslu frá B á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði í júlí 2009 með eldra barni sínu sem fæddist Y. október 2008. Kærandi hafi verið upplýstur um að hugsanleg ofgreiðsla til hans væri til meðferðar og óskað hafi verið gagna og skýringa vegna frekari rannsóknar málsins. Umbeðin gögn og skýringar hafi borist frá kæranda.

Á umsókn kæranda, dags. 1. ágúst 2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu Y. október 2008 komi fram að hann sæki um greiðslur í þrjá mánuði. Nokkrar tilkynningar um fæðingarorlof hafi borist frá kæranda en á tilkynningu dags. 18. júní 2009, sem sé sú tilkynning sem segi til um fæðingarorlof kæranda í júlí 2009, komi fram að hann ætli að taka fæðingarorlof tímabilið 6. júlí–3. ágúst 2009. Kærandi hafi verið afgreiddur í samræmi við það í 100% fæðingarorlof frá 6. til 31. júlí og fengið því 83% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði í júlí, sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 1. mars 2010.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að á viðmiðunartímabili kæranda, skv. 2. mgr. 13. gr. ffl., séu meðaltekjur hans X kr. en samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl. skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Á þessu viðmiðunartímabili sé kærandi einungis með laun frá B og alltaf með X kr. á mánuði fyrir utan maí og desember 2007 þá sé kærandi með X kr. og því lækki þeir mánuðir viðmiðunartekjur hans í X kr. Á réttindatímabili kæranda sem veitti honum rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, skv. 1. mgr. 13. gr. ffl., hafi kærandi einungis þegið laun frá B, alls X kr. á mánuði alla mánuðina utan eins þegar hann hafi verið launalaus og lækki sá mánuður meðaltekjurnar í X kr. Í samræmi við framangreint telur Fæðingarorlofssjóður að ekki verði annað séð en að laun kæranda bæði á viðmiðunartímabili og á þeim tíma frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu séu X kr. á mánuði þá mánuði sem hann hafi verið í vinnu.

Þá upplýsir Fæðingarorlofssjóður að í greiðsluáskorun til kæranda, dags. 31. maí 2010, virðist hafa láðst að taka tillit til þeirrar vinnu sem kæranda hafi verið heimilt að sinna frá 1. til 5. júlí 2009 eða fram til þess tíma að fæðingarorlof kæranda hófst og að það hafi verið leiðrétt með greiðsluáskorun til kæranda, dags. 31. ágúst 2010.

Frá 6. til 31. júlí 2009 hafi kærandi verið skráður í 100% fæðingarorlof og því þegið 83% greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði eða X kr. á mánuði. Fyrir heilan mánuð í fæðingarorlofi hefði kærandi hins vegar verið með X kr. frá Fæðingarorlofssjóði. Föst laun kæranda frá B á viðmiðunartímabili og frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barns hafi verið X kr. þá mánuði sem hann hafi verið í vinnu. Laun frá B fyrir tímabilið 1.–5. júlí, sem sé 17% af mánuðinum, hefðu því öllu jafna átt að nema X kr. miðað við hefðbundin heildarlaun kæranda en hafi þess í stað verið X kr.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að hafa verði í huga að á tímabilinu 1.–5. júlí 2009 hafi einungis verið þrír virkir dagar, þ.e. 1.–3. júlí en 4. og 5. júlí voru laugardagur og sunnudagur. Samkvæmt launaseðli frá B fyrir júlí 2009 hafi kærandi verið með X kr. í laun fyrir 71,28 tíma vinnu sem hafi skipst þannig að hann fékk 24 tíma greidda í dagvinnu eða X kr. og 47,28 tíma greidda í yfirvinnu eða X kr. Meðalvinnutími kæranda á dag hafi því verið rúmir 14 tímar að því gefnu að hann hafi unnið bæði laugardag og sunnudag. Ef kærandi hafi ekki unnið þá daga heldur bara virku dagana hafi hann unnið rétt tæpa 24 tíma á sólarhring. Á öðrum launaseðlum sem hafi borist frá kæranda þar sem hann hafi einnig verið með X kr. á mánuði í laun, þ.e. mánuðina febrúar, apríl, júní, ágúst og desember 2009, sé ekkert samræmi á milli fjölda dagvinnustunda og fjölda yfirvinnustunda nema í ágúst og desember þegar dagvinnustundir hvorn mánuð séu 72 en yfirvinnustundir 20,61. Í febrúar séu dagvinnustundir 74 og yfirvinnustundir 19,50, í apríl séu dagvinnustundir 86 og yfirvinnustundir 12,83 og í júní séu dagvinnustundir 104 og yfirvinnustundir 2,83.

Þá greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að á engum framangreindra launaseðla sé vinnan sundurliðuð niður á tiltekna daga eða styttri tímabil heldur virðast launin hafa verið greidd fyrir mánuðina í heild, þ.m.t. launaseðill fyrir júlí. Þannig verði ekki betur séð en kærandi hafi ákvarðað sér X kr. fast á mánuði í laun umrædda mánuði og sé júlímánuður þar ekki undanskilinn. Eins og fram hafi komið sé kærandi einyrki og sé því í lófa lagið að stilla launaseðlum upp að vild gagnvart dagvinnu og yfirvinnu. Í samræmi við framangreint gangi skýringar kæranda, annars vegar í bréfi, dags. 25. maí 2010, þar sem hann segir að vegna mikillar yfirvinnu og vakta utan dagvinnutíma fyrstu dagana í júlí 2009 hafi útborguð laun verið óvenju há og hins vegar í bréfi, dags. 16. júlí 2010, þar sem kærandi segir að greidd laun ráðist mikið af þeim verkefnum sem eru fyrir hendi hverju sinni, einfaldlega ekki upp.

Fæðingarorlofssjóður telur að samkvæmt framangreindu og í samræmi við 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 2. mgr. 15. gr. a. ffl. hafi sjóðurinn því ofgreitt kæranda X kr. útborgað og með viðbættu 15% álagi X kr. sem gerð sé krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði í samræmi við greiðsluáskorun, dags. 31. ágúst 2010.

Að lokum greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að þann Y. apríl 2010 hafi réttur kæranda til töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. október 2008 fallið sjálfkrafa niður, sbr. 2. mgr. 8. gr. ffl.

Með vísan til alls framangreinds telur Fæðingarorlofssjóður að kærandi hafi réttilega verið endurkrafinn um greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingarorlofs með barni fæddu Y. október 2008.

 

III.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. október 2008.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið of há laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hann þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

Eftir að kæra var lögð fram lækkaði Fæðingarorlofssjóður kröfu sína um endurgreiðslu þar sem sjóðnum hafði láðst að taka tillit til þeirrar vinnu sem kæranda var heimilt að sinna á tímabilinu 1.–5. júlí 2009 en kærandi hóf ekki töku fæðingarorlofs fyrr en 6. þess mánaðar. Var kæranda í samræmi við þetta send ný greiðsluáskorun, dags. 31. ágúst 2010. Í þeirri greiðsluáskorun endurkrefur Fæðingarorlofssjóður kæranda um greiðslur vegna júlímánaðar 2009 samtals að fjárhæð X kr. auk 15% álags, eða samtals X kr.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof samkvæmt lögunum leyfi frá launuðum störfum sem stofnast við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.

Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, eins og ákvæðið hljóðaði við fæðingu barns kæranda Y. október 2008, skyldi mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skyldi miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lauk sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kom inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, og 8. gr. laga nr. 74/2008 skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Af hálfu kæranda kemur fram að um óvenju mikla yfirvinnu hafi verið að ræða á tímabilinu 1.–5. júlí 2009 og vaktir utan dagvinnutíma. Hann vinni sem einyrki og greidd laun ráðist mikið af þeim verkefnum sem séu fyrir hendi hverju sinni. Vegna þessarar miklu vinnu fyrstu dagana í júlí hafi hann greitt sér X kr. fyrir þá vinnu eingöngu, en hann hafi ekki greitt sér laun fyrir aðra daga mánaðarins. Álitaefnið lýtur því að því, hvort þær X kr. sem kærandi greiddi sér í laun í júlí 2009 hafi verið fyrir það tímabil sem kærandi var í fæðingarorlofi, eða hvort sýnt hafi verið fram á að umrædd greiðsla hafi eingöngu verið fyrir vinnu dagana 1.–5. júlí 2009.

Samkvæmt upplýsingum úr skrám ríkisskattstjóra voru föst laun kæranda á viðmiðunartímabilinu og frá því að viðmiðunartímabilinu lauk X kr. á mánuði. Á það við um alla mánuði nema þrjá á þessu tímabili, þar sem kærandi var launalaus. Þannig liggur fyrir að kærandi hefur greitt sér jöfn laun á öllu þessu tímabili, þrátt fyrir mismunandi verkefnastöðu. Fullyrðingar kæranda, um að greidd laun ráðist mikið af þeim verkefnum sem eru fyrir hendi hverju sinni og að vegna mikillar yfirvinnu og vakta utan dagvinnutíma fyrstu dagana í júlí 2009 hafi útborguð laun verið óvenju há, þykja því ekki fá stoð í gögnum málsins.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, og 8. gr. laga nr. 74/2008 skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Er því óhjákvæmilegt að staðfesta niðurstöðu Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu.

Í 2. mgr. 15. gr. a., sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar, en skv. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, skal kærandi færa rök sín fram innan fjögurra vikna frá því að greiðsluáskorun sannanlega barst foreldri. Kærandi hefur engin slík rök fært fram.

Með vísan til alls framangreinds verður hin kærða ákvörðun því staðfest.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að krefja A um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar úr Fæðingarorlofssjóði fyrir júlímánuð 2009 er staðfest með vísan til þeirra breytinga sem gerðar voru á henni 31. ágúst 2010.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum