Hoppa yfir valmynd
3. júní 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 14/2010

Fimmtudaginn 3. júní 2010

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 7. apríl 2010 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 1. mars 2010. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 21. janúar 2010, um ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um útreikning á greiðslum til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði og viðmiðunartímabil útreikningsins.

Með bréfi, dags. 7. apríl 2010, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 9. apríl 2010.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 15. apríl 2010, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hún hafi 21. janúar 2010 fengið greiðsluáætlun frá Fæðingarorlofssjóði en samkvæmt henni hafi hún átt að fá X kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof. Þar sem dóttir hennar hafi fæðst viku eftir áætlaðan fæðingardag eða þann Y. febrúar 2010 voru greiðslurnar lækkaðar í X kr.

Kærandi telur að þar sem áætlað hafi verið að barnið myndi fæðast 31. janúar þá eigi sú greiðsluáætlun að gilda. Kærandi telur einnig rangt að lækka greiðslur eftir að greiðsluáætlun hafi verið send út þar sem áætlað var að barnið myndi fæðast þennan dag og því eigi ófyrirsjáanlegir atburðir ekki að hafa áhrif á fjárhag foreldra. Kærandi bendir jafnframt á að áætlaður fæðingardagur hafi verið settur fram af fagaðilum en ekki foreldrunum. Kærandi og maki hefðu gert ráð fyrir þessum peningum þegar þau ákváðu hvernig fæðingarorlofinu skyldi hagað. Þá segir kærandi að þegar greiðsluáætlunin hafi verið gerð þá hafi hún ekki verið gerð með neinum fyrirvara um að barnið yrði að fæðast 31. janúar og hún hæfi töku fæðingarorlofs í þeim mánuði. Þá vill kærandi koma á framfæri að greiðsluáætluninni hafi verið breytt án þess að hún fengi upplýsingar um eða skýringar á því og hún hafi verið fyrirvaralaust látin endurgreiða mismuninn af þessum fjárhæðum. Einnig telur kærandi að Fæðingarorlofssjóður verði að gæta að ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, þar sem kveðið sé meðal annars á um meðalhófsreglu og jafnræðisreglu.

Á því tímabili sem Fæðingarorlofssjóður reiknar út fæðingarorlof kæranda hafi hún verið í 100% háskólanámi og telur hún miðað við forsendur útreikninga sjóðsins að verið sé að refsa henni fyrir að hafa verið í skóla að mennta sig.

Enn fremur tekur kærandi fram að þótt júlímánuður árið 2008 hafi fallið út í nýrri greiðsluáætlun þá hafi júlímánuður árið 2009 komið inn þar sem kærandi hafi verið tekjulaus. Ástæða þess hafi verið sú að leikskólinn sem kærandi vinnur á var lokaður þá í fimm vikur. Þar sem kærandi hafi verið í skóla þá hafi hún ekki átt neitt sumarfrí inni. Kærandi fer því fram á að júlímánuður árið 2008 verði látinn gilda í staðinn eða að júlímánuður árið 2009 verði reiknaður með eins og hún hafi verið á launum sem kjarnastjóri því hún hafi lítið getað gert við því að leikskólinn hafi verið lokaður á þessum tíma. Að lokum bendir kærandi á að einnig sé sá möguleiki fyrir hendi að viðmiðunartímabilið séu þrír mánuðir í stað fjögurra.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi með umsókn, dags. 9. desember 2009, sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar 31. janúar 2010.

Auk umsóknar kæranda hafi borist vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 16. október 2009, tilkynning um tilhögun fæðingarorlofs, dags. 3. desember 2009, launaseðlar frá B fyrir október–nóvember 2009, yfirlit um nám frá C-háskóla, dags. 8. janúar 2010, bréf frá kæranda, dags. 5. janúar 2010, ráðningarsamningur milli kæranda og B, dags. 20. maí 2009, og bréf frá B, dags. 5. janúar 2010. Enn fremur hafi legið fyrir gögn úr skrám ríkisskattstjóra og úr Þjóðskrá.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að 8. janúar 2010 hafi kæranda verið send greiðsluáætlun þar sem fram kemur að mánaðarlegar greiðslur til hennar séu miðaðar við hlutfall af meðaltekjum hennar samkvæmt skrám skattyfirvalda á tólf mánaða samfelldu tímabili sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Á sömu greiðsluáætlun komi fram að útreikningar eigi við á þeim tíma sem bréfið sé skrifað og fjárhæðir geti því átt eftir að breytast. Kærandi hafi ætlað að hefja töku fæðingarorlofs fyrir fæðingu barns eða þann 15. janúar 2010, sbr. tilkynningu um fæðingarorlof, dags. 3. desember 2009, því hafi ekki annað verið unnt við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar en að miða við að barnið myndi fæðast á áætluðum fæðingardegi og miða við mánuðina júlí 2008–júní 2009. Samkvæmt því hefðu greiðslur til hennar miðað við 100% fæðingarorlof og að barnið hefði fæðst í janúar 2010 orðið X kr. á mánuði.

Jafnframt greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að 20. janúar 2010 hafi borist ný tilkynning um tilhögun fæðingarorlofs frá kæranda og hafi henni í kjölfarið verið send ný greiðsluáætlun, dags. 21. janúar 2010, þar sem fyrirhugaðri fæðingarorlofstöku hennar hafði verið breytt til samræmis við tilkynninguna sem og greiðsluhlutfallinu. Samkvæmt síðari tilkynningunni um fæðingarorlof hafi kærandi ætlað að hefja töku fæðingarorlofs á áætluðum fæðingardegi barns eða 31. janúar 2010 og því hafi ekki annað verið unnt við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar en að miða áfram við að barnið myndi fæðast á áætluðum fæðingardegi og miðað við mánuðina júlí 2008– júní 2009. Í greiðsluáætlun hafi því áfram verið gert ráð fyrir að greiðslur til kæranda myndu nema X kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof en þó með þeim fyrirvara að fjárhæðir gætu breyst, sbr. umfjöllun að framan.

Þá greinir sjóðurinn frá því að við fæðingu barns kæranda, Y. febrúar 2010, hafi fyrst orðið ljóst hvaða mánuðir ættu raunverulega að vera undir við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar. Kæranda hafi í kjölfarið verið send leiðrétt greiðsluáætlun, dags. 19. febrúar 2010, þar sem júlí 2008 var undanskilinn enda utan tólf mánaða tímabilsins en júlí 2009 komið inn í staðinn. Við þessa breytingu hafi mánaðarlegar greiðslur til kæranda lækkað miðað við 100% fæðingarorlof úr X kr. á mánuði í X kr. á mánuði.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 16. gr. laga nr. 120/2009, sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. ffl. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemur þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna. Í athugasemdum við 8. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 74/2008 komi fram að átt sé við almanaksmánuði.

Þá vísar Fæðingarorlofssjóður í 1. mgr. 13. gr. a. ffl. þar sem fram komi að þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda sé gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Í 2. mgr. sé síðan talið upp í fimm stafliðum hvað teljist enn fremur til þátttöku á vinnumarkaði:

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar.

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Í 3. mgr. 15. gr. ffl. sé kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun aflar um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila skv. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna.

Þá greinir sjóðurinn frá því að fæðingardagur barns kæranda sé 7. febrúar 2010 og því skuli, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna kæranda, að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltalslauna sem umfram sé, þá mánuði sem kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði á tímabilinu ágúst 2008– júlí 2009 þó að lágmarki fjóra mánuði, sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl. og a-lið 2. mgr. 13. gr. a. ffl. Launalaust leyfi teljist til þátttöku á vinnumarkaði, sbr. a-lið 2. mgr. 13. gr. a. ffl. og því beri að hafa slíkan tíma með við útreikning á meðaltali heildarlauna foreldris, sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl. in fine.

Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram komi í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telur Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá séu í samræmi við álagningu skattyfirvalda. Í ágúst 2008 hafi kærandi verið með samanlagt X kr. í laun frá E hf., Ríkissjóði Íslands og F sem höfð séu með við útreikninginn. Kærandi hafi svo verið utan vinnumarkaðar og í fullu námi við C-háskóla, sbr. yfirlit frá skólanum, dags. 8. janúar 2010, frá september 2008 til apríl 2009 og þeir mánuðir séu undanskildir við útreikninginn. Þann 20. maí hafi kærandi svo hafið störf hjá B, sbr. ráðningarsamning milli aðila, dags. 20. maí 2009, og laun kæranda fyrir maímánuð séu X kr. sem höfð séu með við útreikninginn og í júní hafi kærandi verið með X kr. í laun frá B. Samkvæmt staðgreiðsluskrá sé kærandi launalaus í júlí 2009 en í bréfi frá B, dags. 5. janúar 2010, komi fram að kærandi hafi verið í fastri vinnu á leikskólanum G í júlí og ágúst 2009 en í ólaunuðu leyfi. Samkvæmt því og í samræmi við a-lið 2. mgr. 13. gr. a. og 2. mgr. 13. gr. ffl. in fine beri að hafa þann mánuð með við útreikninginn. Við útreikninginn á tólf mánaða tímabilinu séu því mánuðirnir ágúst 2008 og maí–júlí 2009 hafðir með en mánuðirnir september 2008–apríl 2009 undanskildir þar sem kærandi hafi verið utan vinnumarkaðar þá mánuði og í fullu námi.

Þá bendir Fæðingarorlofssjóður á að hvorki sé að finna í ffl. né reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, heimild til að miða við annað viðmiðunartímabil eða önnur laun en kærandi raunverulega hafði á framangreindu tólf mánaða viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. né heldur að hafa færri mánuði en fjóra undir við útreikninginn.

Með vísan til framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að greiðsluáætlun til kæranda, dags. 19. febrúar 2009, beri með sér réttan útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

 

III.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 19. febrúar 2010, um útreikning greiðslna til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 2. mgr. 7. gr., í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. ffl. Þegar um er að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, á viðmiðunartímabili skal taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og skal aldrei taka mið af hærri fjárhæð en nemur þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismun þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Einungis skal miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. ffl. Aldrei skal þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Í 13. gr. a. ffl., sbr. 9. gr. laga nr. 74/2008, er skilgreint hvað felist í því að starfa á innlendum vinnumarkaði í skilningi ffl. Þar segir í 1. mgr. að þátttaka á innlendum vinnumarkaði feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi.

Í 2. mgr. 13. gr. a ffl. segir að til þátttöku á vinnumarkaði teljist enn fremur:

 

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

 

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,

 

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

 

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

 

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Barn kæranda er fætt 7. febrúar 2010 og því er viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. tímabilið ágúst 2008 til og með júlí 2009.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra fékk kærandi greidd laun í þrjá mánuði á viðmiðunartímabilinu, þ.e. frá E hf., Ríkissjóði Íslands og F í ágúst 2008 og frá B ehf. í maí og júní 2009. Aðra mánuði tímabilsins voru kæranda ekki greidd laun samkvæmt staðgreiðsluskrá. Heildarlaun kæranda á viðmiðunartímabilinu samkvæmt staðgreiðsluskrá voru X kr. sem er sama fjárhæð og kemur fram á greiðsluáætlun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 19. febrúar 2010.

Samkvæmt vottorði vinnuveitanda kæranda, dags. 5. janúar 2010, var kærandi í ólaunuðu leyfi frá störfum hjá G í júlí 2009 en ólaunað leyfi telst til þátttöku á vinnumarkaði skv. a-lið 2. mgr. 13. gr. a. ffl. Kærandi telst því hafa verið á innlendum vinnumarkaði í skilningi ffl. í fjóra mánuði á viðmiðunartímabilinu. Aðra mánuði ársins var kærandi utan vinnumarkaðar og í fullu námi við C-háskóla, samkvæmt vottorði frá skólanum, dags. 8. janúar 2010.

Hvorki er heimilt samkvæmt ffl. né reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, að líta til launa kæranda á öðru tímabili en kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. ffl. við útreikning meðaltals heildarlauna og greiðslna til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði eða miða við önnur laun en foreldri raunverulega hafði á viðmiðunartímabilinu. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin hvorki unnt að fallast á kröfur kæranda um að önnur greiðsluáætlun en greiðsluáætlun, dags. 19. febrúar 2010, skuli gilda né að miða skuli við annað viðmiðunartímabil eða önnur laun en kærandi raunverulega hafði á viðmiðunartímabilinu. Þá kemur skýrt fram í greiðsluáætlunum, dags. 8. og 21. janúar 2010, að útreikningarnir eigi við á þeim tíma sem áætlanirnar eru gerðar og verði breytingar á forsendum sem hafa áhrif á greiðslur geti fjárhæðir breyst. Þá verður ekki talið að Fæðingarorlofssjóður hafi við meðferð máls kæranda brotið gegn reglum um meðalhóf og jafnræði.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 19. febrúar 2010, talin fela í sér réttan útreikning á þeim greiðslum sem kærandi á rétt á úr Fæðingarorlofssjóði, og verður hún því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna til A úr Fæðingarorlofssjóði er staðfest.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum