Velferðarráðuneyti


Úrskurðir ráðuneytis

Úrskurðir velferðarráðuneytisins í málum þar sem stjórnvaldsákvarðanir lægra settra stjórnvalda þ.e. stofnana og nefnda sem heyra undir ráðuneytið, hafa verið kærðar til ráðuneytisins.

Félagsdómur

Félagsdómur er sérdómstóll sem starfar á grundvelli laga um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Hlutverk Félagsdóms er að dæma í réttarágreiningi aðila vinnumarkaðarins. Þá er heimilt að leita úrskurðar Félagsdóms um hvort starfsemi geti talist vera iðnaður og til hvaða iðngreinar hún taki.

Kærunefnd barnaverndarmála

Unnt er að skjóta tilteknum ákvörðunum barnaverndarnefnda, Barnaverndarstofu, heimilis eða stofnunar til kærunefndar barnaverndarmála samkvæmt barnaverndarlögum, nr. 80/2002.

Kærunefnd greiðsluaðlögunarmála

Allar ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laga um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101/2010, og laga um tímabundið úrræði einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota, nr. 103/2010 má kæra til kærunefndar greiðsluaðlögunarmála. Kærufrestur er tvær vikur frá því að ákvörðun var tekin og er málsmeðferð aðilum máls að kostnaðarlausu.

Kærunefnd húsamála

Frá 1. júlí 2010 voru kærunefnd fjöleignarhúsamála, kærunefnd húsaleigumála og úrskurðarnefnd frístundahúsamála sameinaðar í eina nefnd sem heitir kærunefnd húsamála. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um ágreining milli eigenda í fjöleignarhúsum, milli leigjenda og leigusala íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og milli leigusala og leigutaka lóða undir hús í frístundabyggð.

Niðurstöður mála sem voru í vinnslu þegar hin nýja nefnd tók til starfa eru birt undir kærunefnd húsamála, en eldri álit kærunefndar húsaleigumála og kærunefndar fjöleignarhúsmála verða áfram aðgengileg á vef Réttarheimilda.

Álit frá eldri nefndum:

Kærunefnd fjöleignarhúsamála

Frá 1. júlí 2010 voru kærunefnd fjöleignarhúsamála, kærunefnd húsaleigumála og úrskurðarnefnd frístundahúsamála sameinaðar í eina nefnd sem heitir kærunefnd húsamála. Niðurstöður mála sem voru í vinnslu þegar hin nýja nefnd tók til starfa eru birt undir kærunefnd húsamála, en eldri álit kærunefndar fjöleignarhúsmála verða áfram aðgengileg á vef Réttarheimilda.

Kærunefnd húsaleigumála

Frá 1. júlí 2010 voru kærunefnd fjöleignarhúsamála, kærunefnd húsaleigumála og úrskurðarnefnd frístundahúsamála sameinaðar í eina nefnd sem heitir kærunefnd húsamála. Niðurstöður mála sem voru í vinnslu þegar hin nýja nefnd tók til starfa eru birt undir kærunefnd húsamála, en eldri álit kærunefndar húsaleigumála verða áfram aðgengileg á vef Réttarheimilda.


Kærunefnd jafnréttismála

Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, geta einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök, í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna sem telja að ákvæði laganna hafi verið brotin á sér, leitað atbeina kærunefndar jafnréttismála. Jafnréttisstofa getur óskað eftir að kærunefnd jafnréttismála taki mál til meðferðar. Kærufrestur er sex mánuðir.

Úrskurðarnefnd almannatrygginga

Til úrskurðarnefndar almannatrygginga er unnt að kæra ágreining sem rís um grundvöll, skilyrði og upphæð bóta eða greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 eða samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, ágreining um endurkröfurétt, ofgreiðslur og innheimtu, skv. 55. gr. laga um almannatryggingar, niðurstöður Sjúkratryggingastofnunar í málum er varða sjúklingatryggingu, sbr. lög nr. 111/2000, um sjúklingatryggingu og ágreining um grundvöll, skilyrði eða fjárhæð bóta skv. III. kafla laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008. Kærufrestur er þrír mánuðir.

Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðs­aðgerða

Til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða er unnt að kæra ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærufrestur er þrír mánuðir.

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála

Frá 1. júlí 2010 voru úrskurðarnefnd félagsþjónustu og kærunefnd húsnæðismála sameinaðar í eina nefnd sem heitir úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála. Hlutverk nefndarinnar er áfram að skera úr ágreiningsmálum sem kunna að rísa vegna ákvarðana félagsmálanefnda á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og vegna ákvarðana húsnæðisnefnda og Íbúðalánasjóðs á grundvelli laga um húsnæðismál.

Niðurstöður mála sem voru í vinnslu þegar hin nýja nefnd tók til starfa eru birt undir úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála, en eldri úrskurðir kærunefndar húsnæðismála verða áfram aðgengilegir á vef Réttarheimilda.

Úrskurðir frá eldri nefndum:

Kærunefnd húsnæðismála

Frá 1. júlí 2010 voru kærunefnd húsnæðismála og úrskurðarnefnd félagsþjónustu sameinaðar í eina nefnd sem heitir úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála. Niðurstöður mála sem voru í vinnslu þegar hin nýja nefnd tók til starfa eru birt undir úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðsmála, en eldri úrskurðuri kærunefndar húsnæðismála verða áfram aðgengilegir á vef Réttarheimilda.

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála

Til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála er unnt að kæra ágreining sem rís á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um réttindi foreldra sem teknar eru á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, og ákvarðanir Tryggingastofnunar um réttindi líffæragjafa sem teknar eru á grundvelli laga um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, nr. 40/2009. Kærufrestur er þrír mánuðir.

- - - -