Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 75/2016 Úrskurður 14. október 2016 

Mál nr. 75/2016                     Eiginnafn: Snekkja

 


                                               

 

Hinn 14. október 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 75/2016 en erindið barst nefndinni 5. september.

Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

1. mgr. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

2. mgr. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

3. mgr. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Allmörg dæmi eru um það í íslensku um það að samnöfn séu notuð sem mannanöfn, t.d. Hrafn. Annað dæmi um að orð yfir skipstegund sé notað sem eiginnafn er Nökkvi ‚bátur, skip, steinskip‘ sem kemur fyrir að fornu og aftur um miðja 20. öld. Það er því fordæmi fyrir slíkri notkun. Samkvæmt Íslenskri orðabók hefur orðið snekkja meginmerkinguna ‚(lítið) skip [...] kappróðrarbátur‘. Það virðist ekki hafa neina neikvæða hliðarmerkingu.

Eiginnafnið Snekkja (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Snekkju, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Snekkja (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum