Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 58/2016 Úrskurður 24. júní 2016

Mál nr. 58/2016                     Aðlögun kenninafns: Valdason

 


 

Hinn 24. júní 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 58/2016 en erindið barst nefndinni 15. júní:

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 14. júní 2016, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx um að taka upp kenningu til föður síns, Vasyl. Óskar hann eftir að eiginnafn föðurins verði lagað að íslensku máli, Valdason.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Valdason.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum