Hoppa yfir valmynd
6. október 2015 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 66/2015 Úrskurður 30. september 2015

Mál nr. 66/2015                     Eiginnafn: Valkyrja

 


Hinn 30. september 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 66/2015 en erindið barst nefndinni 26. ágúst:

Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

1. mgr. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

2. mgr. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

3. mgr. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á annað skilyrði 1. mgr. hér að ofan um að eiginnafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Skilningur mannanafnanefndar á íslensku málkerfi er í samræmi við þá túlkun löggjafans sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 45/1996 sem nú gilda um mannanöfn. Þar segir m.a.: „Íslenskt málkerfi er samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.“

Allmörg dæmi eru um það í íslensku að samnöfn séu notuð sem mannanöfn. Samnöfn sem merkja titla eða starfsheiti (t.d. biskup, ráðherra, forseti, kóngur, drottning, prestur o.s.frv.) eru hins vegar almennt ekki notuð sem sérnöfn. Dæmi um höfnun vegna þessa er nafnið Prinsessa, mál nr. 25/2015. Það var talið brjóta í bág við íslenskt málkerfi skv. 1. mgr. 5 gr. laganna.

Orðið valkyrja er úr goðafræði og táknaði ‚eins konar skjaldmær á mörkum jarðneskrar og yfirnáttúrulegrar tilveru, velur þá sem deyja og ræður sigri í orrustum [...]‘ (Íslensk orðabók 2007:1120). Langsótt er hins vegar að halda því fram að valkyrja sé starfsheiti í nútímamáli. Í nútímamáli vísar orðið frekar til merkingarinnar ‚framtakssöm kona‘. Nafnið Valkyrja brýtur því ekki í bág við 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Valkyrja (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum