Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2015 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 51/2015 úrskurður 29. júní 2015

Mál nr. 51/2015                     Aðlögun kenninafns: Pétursdóttir


Hinn 29. júní 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 51/2015 en erindið barst nefndinni 24. júní:

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 8. júní 2015, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxxxx um að dóttir hennar taki upp kenningu til föður síns, Piotr. Óskar hún að rita kenninafnið Pétursdóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Pétursdóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum