Hoppa yfir valmynd
8. maí 2015 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 19/2015 úrskurður 24. apríl 2015

Mál nr. 19/2015                     Eiginnafn:      Góði


Hinn 24. apríl 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 19/2015 en erindið barst nefndinni 2. mars:

Eiginnafnið Góði (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Góða, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Íslenskt málkerfi er samansafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Nokkur karlkyns eiginnöfn eru leidd af lýsingarorðum í frumstigi, s.s. Tryggvi af lýsingarorðinu tryggur og Fróði af fróður.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Góði (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum