Hoppa yfir valmynd
20. júní 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 45/2014, úrskurður 20. júní 2014

Mál nr. 45/2014
Millinafn: Eskfjörð

Hinn 20. júní 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 45/2014 en erindið barst nefndinni 10. júní:

Millinafnið Eskfjörð er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Eskfjörð uppfyllir þannig ákvæði  6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Eskfjörð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum