Hoppa yfir valmynd
18. mars 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 29/2014, úrskurður 18. mars 2014

Mál nr. 29/2014

Eiginnafn: Ara

Hinn 18. mars 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 29/2014 en erindið barst nefndinni 12. mars:

Eiginnafnið Ara (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Öru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ara (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum