Hoppa yfir valmynd
5. júlí 2013 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 40/2013, úrskurður 5. júlí 2013

Mál nr. 40/2013                    Eiginnafn:     Auðberg

 

Hinn 5. júlí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 40/2013 en erindið barst nefndinni sama dag:

Eiginnafnið Auðberg (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Auðbergs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Til samanburðar má vísa til fjölda líkra eiginnafna, s.s. Eyberg, Hafberg, Hallberg og Vilberg.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Auðberg (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum