Hoppa yfir valmynd
16. maí 2013 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 28/2013, úrskurður 16. maí 2013

Mál nr. 28/2013                    Millinafn: Logn


Hinn 16. maí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 28/2013 en erindið barst nefndinni 6. maí.

Millinafnið Logn uppfyllir þau skilyrði sem gerð eru til millinafna skv. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Það er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Logn er samþykkt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum